Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í dag, sunnudaginn 23. október, hlýtur að marka nokkurs konar tímamót hér á landi varðandi umfjöllun um hin svokölluðu „bóluefni“ við Covid-19 og þau ósannindi sem haldin hafa verið að almenningi í næstum þrjú ár. Greinarhöfundur Reykjavíkurbréfs hefur hugtakið „vísindi“ meira að segja innan gæsalappa og segir orðrétt:
„Vísindamennirnir austan hafs og vestan höfðu margoft gefið það upp sem heilagan alsannleik að væru menn bólusettir, og jafnvel aðeins einu sinni, þá fengju þeir ekki veiruna og það sem meira væri, þeir smituðu ekki aðra. Það var á þessum grundvelli sem Bandaríkjastjórn hóf herferðina ógeðfelldu gegn „óvinum þjóðarinnar,“ sem voru þeir sem neituðu að láta bólusetja sig, m.a. af trúarástæðum. Ungir hermenn, sem neituðu sprautu, voru reknir úr hernum, þeir sömu sem höfðu fylgt samvisku sinni með því að ganga í herinn og fórna vildu lífi sínu, ef það þyrfti, fyrir land sitt og þjóð. Með því að neita sprautu voru þeir, að sögn sjálfs forseta Bandaríkjanna, hættulegustu óvinir þjóðarinnar!
Stjórnmálamennirnir öpuðu flestir gagnrýnislaust eftir misvísandi yfirlýsingar „vísindamanna“ sem fæstir mótuðu sér sjálfstæða skoðun, en endurtóku fullyrðingar háttsettustu gauranna á girðingunni, hvort sem þeir voru hjá WHO, með sitt vafasama álit, eða voru í ól dr. Faucis, sem ráðskast hefur með öll þessi mál vestra í áratugi! Bandaríkjamenn hafa enn tilhneigingu til að horfa til forseta síns og það þótt þeir fylgi ekki pólitískri leiðsögn hans við kjörborðið. Allar yfirlýsingar Bidens forseta voru hafðar upp úr æðstuprestum vísindanna um að bólusettum væri óhætt. Þeir fengju ekki fárið og þeir smituðu ekki. Nú hefur Biden, sem þetta tuggði í tíma og ótíma, fengið veiruna vondu sennilega fjórum sinnum og hefur verið sprautaður oftar en það. Hvorki hann né „vísindamennirnir,“ sem hann byggði allt sitt á, hafa beðið nokkurn mann afsökunar á að hafa hvað eftir annað farið með fleipur og haft almenning fyrir rangri sök.“
Hinar raunverulegu falsfréttir og upplýsingaóreiða fjölmiðla
Internetið gleymir engu og nú þegar sjálfur forstjóri Sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna, hin fimmsprautaða Rochelle Walensky, hefur greinst með Covid-19 og ætlar að halda sig innanhúss svo hún smiti ekki aðra, þá er kannski kominn tími á einhvers konar uppgjör hjá fjölmiðlum. Til er upptaka af Walensky þar sem hún segir hikstalaust að þeir „bólusettu“ beri hvorki með sér veiruna né verði veikir af Covid.
Hverjir hafa flutt rangar fréttir af „bóluefnunum,“ sem yfirmaður Pfizer sagði nýlega aldrei hafa verið prófuð hvað dreifingu smita snertir?
Hverjir héldu því fram að þetta efni myndi stuðla að hjarðónæmi? Var logið að ríkisstjórnum og embættismönnum heims eða var þeim sagður sannleikurinn og þau lugu að almenningi? Að þessu spurði Evrópuþingmaðurinn Christine Anderson yfirmann Astra Zeneca á Evrópuþinginu í september. Lítið var um svör.
En hér á landi var það til dæmis sjálfur landlæknir og fálkaorðuhafinn Alma Möller sem sagði „bóluefnin“ stuðla að ónæmi. Þetta kemur fram í eldri frétt Stundarinnar:
„Alma Möller landlæknir sagði markmið bólusetningar vera að ná hjarðónæmi og til þess að svo mætti verða þyrfti að bólusetja 65 prósent þjóðarinnar“.
„Ingileif Jónsdóttir, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, sagði að þrátt fyrir flýtiafgreiðslu á bóluefni Pfizer og mögulega annarra bóluefna væru þau fullkomlega jafn örugg og önnur bóluefni....Þá sýndu bóluefni Pfizer og Moderna mikið öryggi og mikla vernd, 94-95 prósent vernd gegn veirunni. Ávinningurinn væri miklu meiri en áhættan, þó alltaf gætu komið upp aukaverkanir. Þær aukaverkanir sem væru alvarlegar væru hins vegar afar sjaldgæfar, mögulega einn á móti hálfri til einni milljón.“
„Hjarðónæmi verður væntanlega ekki náð fyrr en um mitt næsta ár eða seinni part ársins...Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag.“
Í Morgunblaðinu 10. nóv. 2020 er haft eftir Kára Stefánssyni forstjóra Íslenskrar Erfðagreiningar:
„Hefur bóluefnið í 90% tilvika komið í veg fyrir Covid-19-smit í þriðja fasa lyfjaþróunarinnar. „Það þykir feikilega góður árangur, betri en árangurinn af flestum inflúensubóluefnum. Því er þetta afskaplega góð niðurstaða.“
Vissi þetta fólk að það væri að ljúga eða eru þessir hámenntuðu læknar og vísindamenn auðtrúa kjánaprik og sölumenn? Og vissu þau ekki um mögulegan skaða af þessum tilraunaefnum?
Bandaríski læknirinn Dr. Elizabeth Lee Vliet segir að læknar hefðu mátt eiga von á þeim fylgikvillum og aukaverkunum sem fylgja mRNA COVID-19 bólusetningum á grundvelli gagna og rannsókna sem ná 15 ár aftur í tímann.
Hver laug, hver vissi hvað og að hverjum var logið og hverjir fluttu falsfréttir í faraldrinum?
2 Comments on “Morgunblaðið farið að sjá í gegnum falsvísindi „bóluefnanna“”
Það er hægt að ljúga þúsund sinnum að einum manni,
og auðvelt að ljúga einu sinni að þúsund manns.
En enginn kemst upp með að ljúga þúsund sinnum að þúsund manns.
Vesturheimska lygin er að hruni komin
Loksins Loksins eru helstu fréttamiðlarnir að opna augun fyrir því sem er að koma í ljós (Takk fyrir það),, hversvegna var þetta ekki séð fyrr, það er ekki eins og þetta hafi verið að koma upp núna, þetta er búið að vera í fréttum í útlandinu í talsverðan tíma, en hér var þöggun nema hjá,,,Fréttinni og Útvarp Sögu….