Útvarpsmaður deyr í beinni útsendingu – ákafur talsmaður C-19 „bólusetninga“

frettinErlent, Fjölmiðlar1 Comment

Breski út­varps­þáttastjórnandinn Tim Gough lést í morgun á meðan hann stjórnaði morgunþætti sínum á út­varps­stöðinni GenX Radio Suf­folk. Um klukku­tími var liðinn af þættinum þegar tón­listin stoppaði skyndi­lega í miðju lagi.

Skömmu síðar hófst tón­listin aftur en stjórn­endur stöðvarinnar til­kynntu þá að Gough sem var 55 ára hefði látist. Líkleg dánarorsök er sögð hjartastopp.

Gough var ákafur talsmaður fyrir ágæti C-19 „bóluefnanna“ eins og færsla hans frá 19. október í fyrra sýnir. Þá gaf hann lítið fyrir þá sem settu spurningar við opinberu útgáfuna af C-19 „faraldrinum“ eins og færsla hans frá því í desember 2020 staðfestir. Þá lýsti hann því í Twitter færslu 21. desember í fyrra að örvunarskammtur frá Pfizer og Moderna væri ekkert vandamál, aðeins aumur handleggur í 36 klukkustundir og hvatti til þess að farið væri í örvunarskammt.

Það má því ganga út frá því með vissu að Gough hafi verið marg sprautaður með C-19 „bóluefni“.

Í ljósi mikilla veikinda og fjölda skyndilegra dauðsfalla í mikið C-19 „bólusettum“ löndum undanfarna mánuði er ekki ólíklegt að sprautuefnin hafi stuðlað að ótímabærum dauða hans eins og margra annarra C-19 „bólusettra“ einstaklinga.

https://twitter.com/Tim_Gough/status/1450586642679484419


One Comment on “Útvarpsmaður deyr í beinni útsendingu – ákafur talsmaður C-19 „bólusetninga“”

  1. Ég segi nú bara eins og mér var kennt við matarborðið sem drengur: „Verði þér að góðu!“

Skildu eftir skilaboð