Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta er verulega ósáttur með stefnu Alþjóða handknattleikssambandsins (IHF) varðandi Covid-19 reglur á HM í handbolta sem hefst í mánuðinum.
Greint var frá því í gær leikmenn á HM verði skimaðir reglulega fyrir veirunni á mótinu auk þess sem þeir munu þurfa að sæta fimm daga sóttkví greinist þeir jákvæðir fyrir Covid-19.
Björgvin skrifar og merkir IHF í færslu sem hann birtir á Twitter og spyr sambandið hvort sambandið sé að grínast með þessar reglur sínar á HM og hvort verið sé að reyna að eyðileggja íþróttina.
Hann spyr vini sína hvað taka skuli til ráða og segir að þetta þurfi að stöðva.
Reglurnar eiga ekki við áhorfendur
Samkvæmt upplýsingum sem Fréttin fékk frá IHF eiga þessar reglur; hvorki sprautuskylda, skimanir né grímur, við áhorfendur á svæðinu heldur aðeins leikmenn, þjálfara, sjálfboðaliða og starfsfólk IHF.
IHF sem sagðist fyrir um það bil mánuði síðan ætla að svara Fréttinni um lögmæti þess að þvinga handboltamenn o.fl. í „bólusetningar,“ hefur enn ekki svarað, enda eru þvinganir sambandsins ólöglegar með öllu.
3 Comments on “Björgvin Páll spyr hvort verið sé að reyna eyðileggja handboltann”
Ėg segi bara, Guð hjálpi þeim ef við, sem vissum nokkurn vegin, hvað þetta kjaftæði snerist um, hegðuðum okkur eins og þeir, gagnvart okkur. En þeir munu nú sennilega ekki biðla til okkar. Þeir sem koma ekki auga á siðleysi, eru alltaf í hættu, að verða þess bráð.
En, hví ekki að fara að gera eitthvað annað? Búið til ykkar eigin deild. Og hættið að beygja ykkur fyrir einhverjum frímúrurum!
Þátttakendur eiga að gera uppreisn og neita að taka þátt í þessu covið bulli. Annað hvort gefur IHF eftir og fellur frá þessum kröfum, eða það verður hreinlega ekkert mót. Standið nú öll saman og neitið. Einfalt mál.
Sammála ykkur Trumpet og Margrét Anna