Gregory Yee, fréttamaður Los Angeles Times, lést óvænt á miðvikudaginn á heimili sínu í Hollywood. Fjölskylda hans segir orsökina virðast tengjast öndunarerfiðleikum. Hann var 33 ára. Yee gekk til liðs við The Times sumarið 2021 sem næturfréttamaður og hafði starfað sem einn af 18 fréttamönnum í „nýjum fréttum.“ Hann fjallaði um hitabylgjur og skógarelda, byssuofbeldi í Oakland og deilurnar um gervigreindar lögregluhunda o.fl., segir í frétt Los Angeles Times.
Töluvert hefur verið um skyndileg andlát ungs fjölmiðlafólks undanfarið. Tveir ungir fjölmiðlamenn hjá fréttastöðinni ABC News létust í lok desember, og þrír íþróttafréttamenn létust á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Katar fyrir áramót. Þá lést í byrjun mánaðar einnig 46 ára gamall blaðamaður The Irish Times.
This is so sad 😞. I also really hate how many people have been dying suddenly in their 30s lately. “Gregory Yee, Times reporter who chased the stories that shaped L.A., dies at 33” https://t.co/pTHRcYDfoi
— Laura Ilana (@LilanaPa) January 6, 2023
Hér neðar má sjá myndskeið um fjölmiðlafólk sem hefur hnigið niður eða látist undanfarið:
One Comment on “Fréttamaður Los Angeles Times lést skyndilega 33 ára”
Hún Laura skilur ekkert í þessum með mynd af sér með grímu á Twitter.. Hún gæti hreinlega baðað sig í sannleikanum en hefur ekki vitsmunalega burði til að átta sig á hvað er að gerast í heiminum.