Sænski loftslagsaðgerðarsinninn, Greta Thunberg, var fjarlægð af lögreglu á mótmælum ásamt öðru fólki í Þýskalandi í dag. Greta var ásamt hópi fólks að mótmæla stækkun kolanámu.
Samkvæmt miðlinum Politico þá hafði Greta neitað að fara að fyrirmælum lögreglunnar og var því leidd í burtu af lögreglu. Þá segir í þýska miðlinum Bild að Greta hafi verið glottandi á meðan handtökunni stóð.
Í myndbandi sem Joanie Lemercier, sem deilir sömu hugsjónum og Greta þegar kemur að loftslagsmálum, má sjá er lögreglan ýtir Gretu og fleira fólki í burtu frá mótmælunum. Að sögn Joanie voru mótmælin lögleg.
⚡JUST IN - Police removes alleged environment crusader Greta Thunberg and her buddies from the anti-coal protest in Luetzerath, Germany. pic.twitter.com/DbdiWYyinR
— Megh Updates 🚨™ (@MeghUpdates) January 15, 2023
One Comment on “Glottandi Greta Thunberg fjarlægð af mótmælum í Þýskalandi”
Þetta er sviðsett leikrit, (e. project) eins og reyndar allt heila Gretu Thunberg dæmið.