Unglingalandsliðskonan Estrella Martín Rasco lést skyndilega í heimabæ sínum, Ayamonte á Suður-Spáni á miðvikudag, að sögn félags hennar Sporting Club de Huelva. Estrella var fjórtán ára og hefur dánarorsök ekki verið gefin upp.
Samkvæmt fréttum í spænskum fjölmiðlum hafði Estrella verið á hefðbundinni þriðjudagsæfingu skömmu áður en foreldrar hennar fundu hana meðvitundalausa á heimili þeirra á miðvikudaginn.
Sporting Club de Huelva tilkynnti um skyndilegt andlát hennar.
„Sporting Club de Huelva harmar andlát Estrella Martín Rasco sem lést í heimabæ sínum, Ayamonte, í morgun. Hún skilur eftir djúpa sorg fyrir fjölskyldu sína, vini og allt félagið,“ segir í yfirlýsingu félagsins.
„Þegar þessar sorglegu fréttir bárust ákvað félagið að fresta æfingum vikunnar fyrir unglingaliðið sem og æfingum eldri flokka. Leikjum neðri flokka í þessari viku hefur einnig verið frestað og sömuleiðis hefur verið beðið um frestun á F-deildarleiknum í Sevilla á morgun,“ bætti félagið við.
Real Madrid og Barcelona eru meðal þeirra félaga sem heiðra minningu Estrellu.