Eru veiruuppgjörið loksins að eiga sér stað?

frettinCOVID-19, Geir Ágústsson2 Comments

Geir Ágústsson skrifar:

Um daginn birtist greinin Að viðurkenna mistök án þess að viðurkenna mistök eftir Einar Scheving, tónlistarmann. Hún lagði upp úr orðum Kára Stefánssonar í nýlegu viðtali. Þar segir meðal annars:

Er Kári s.s. kominn í hóp samsæriskenningasmiða, eða sleppur hann fyrir horn þar sem hann er aðeins vitur (afsakðið - vitrari) eftir á? Er Kári kannski, með þessu nýjasta útspili, búinn að gefa læknum, vísindafólki og fjölmiðlum leyfi til að tjá sig á annan máta en leyfst hefur hingað til? Ég meina, ef Kári getur viðurkennt mistök - án þess reyndar að gera það - þá hljóta minni spámenn að mega það líka, eða hvað?

Nú segir hann að óþarfi hefði verið að bólusetja fólk undir fimmtugu.

Ef frá eru talin börn fram að fimm ára aldri (sem - ótrúlegt en satt, ekki þótti nauðsynlegt að bólusetja), þá erum við að tala um u.þ.b. 250.000 Íslendinga, þ.e. u.þ.b. 65% landsmanna. M.ö.o. - af öllum þeim Íslendingum sem Kári vildi ólmur bólusetja, þá segir hann nú að 2/3 þeirra hefðu ekki þurft þessa bólusetningu. Ef þessi afgerandi meirihluti Íslendinga hefði haft tök á því að fara eftir ráðleggingum ritskoðaðra og ófrægðra kollega Kára um heim allan (eða getað þegið ráð Kára sjálfs núna), væru þeir þá allir drullusokkar, eins og hann kallaði óbólusetta á sínum tíma?

Þessu gat Kári ekki setið undir og skrifaði einhvers konar svar í eigin grein, Að láta sér ekki nægja að berja trommur - Opið bréf til Einars Scheving. Stíl Kára þekkjum við:

Þú ert trymbill og sem slíkur mikill listamaður og með stíl sem mér finnst stórkostlegur og það er ekki nokkur vafi í mínum huga að þú hefur veitt margfalt meiri ánægju með þínu starfi en ég með mínu. Hins vegar þegar þú leggur frá þér kjuðana og ferð að tjá þig um heilbrigðismál eins og farsóttina þá lendir samfélagið í svolitlum vanda með að meta þann viskubrunn sem þú byggir skoðanir þínar á meðal annars af því það veit ekki það sem ég og þú vitum að þú ert mikill heilbrigðisvísindasnillingur.

Einar svarar þessu auðvitað enda um að ræða þá dæmigerðu tilraun til að þagga niður umræðu með því að gera öðrum upp þekkingar- og skilningsleysi. Úr grein hans, Opnum á umræðuna - Opið bréf til Kára Stefánssonar (og núna fer þetta að verða spennandi):

Ef fjölmiðlar myndu taka upp á því að sinna vinnunni sinni, myndir þú þá samþykkja að mæta sérfræðingum sem eru á öndverðu meiði við þig varðandi skað- og gagnsemi bóluefnanna - t.d. hjartalæknum á borð við Dr. Aseem Malhotra eða Dr. Peter McCollough? Slíkar umræður gætu t.d. farið fram í spjallþætti á RÚV eða Stöð 2. Væri þetta ekki kjörið tækifæri til að þagga niður í efasemdarröddum í eitt skipti fyrir öll? Þessir tveir læknar hafa verið ofarlega í umræðunni um skaðsemi bóluefnanna og er sá síðarnefndi, að ég best veit, með fleiri birtar rannsóknargreinar í fagtímaritum en nokkur annar læknir – a.m.k. hjartalæknir. 

Nú er að sjá hvað Kári segir. Samþykkir hann áskorun „trymbilsins“ um að mæta sérfræðingum með jafnmargar doktorsgráður og fræðigreinar á bakinu og hann sjálfur, en með öndverðar skoðanir á ágæti þess að dæla tilraunalyfjum í fólk niður í barnsaldur? Eða æðir hann aftur í manninn með uppnefnum um leið og skautað er framhjá aðalatriðum málsins?

Ég bíð spenntur, vægast sagt.

2 Comments on “Eru veiruuppgjörið loksins að eiga sér stað?”

  1. Frétta net kerfið mitt sýnir manni að þeir ætla sér að loka og læsa öllu aftur … klikkhausarnir í USA – Það er komið nafn á nýjasta variant ið en það er kallað election variant .. nú eru að koma kosningar 2024 og þeir hafa víst engin önnur spil en að spila því sama og síðast. Nú verður öllu lokað og það er svona hægt að komast í fjölmiðlana bæði hér og úti að fleiri eru að smitast af covid – sem er bara einhver fréttatilkynning sem þeir senda út og logið. Mitt fréttanet talar um seint í September byrjun October þá verður MSM með fullan áróður af tilkynning og öllu því sem þar fylgir 24/7 … hvenær þeir læsa öllu og aflýsa flugi verður að koma í ljós en WHO vill fá fullt yfirráð yfir aðgerðum á Pandemic tímun að mig minnir eigi síðar en 24.Nóvember sem UN þjóðir heimsins þurfa að skrifa undir. Við vitum fyrir víst að ríkisstjórn Íslands hefur verið stolin, eignuð af erlendum samtökum þannig að við fáum enga hjálpa þaðan né frá ríkisstyrktum fjölmiðlum. Við erum í raun íbúar í herteknu landi.

  2. Ekkert uppgjör mun eiga sér stað. Of stór partur íslendinga var bôlusettur, og hefur þar af leiðandi enga sjálfstæða hugsun. Beintengd við 5g turnana, sem eru út um allt, þrátt fyrir vitneskju þeirra sem settu þå úpp, að þeir séu ekki til góðs. Ég varaði mömmu mína við gyðingnum ī fjölskildu okkar, sem hafði skrifað ritgerð um það, hvernig stórfyrirtækin ættu að bregðast við mótspyrnu starfsmannanna. Èg reyndi að vara hana við. Hún hunsaða það. Sennilega þótti henni vænna um gyðinginn en sitt eigið afkvæmi.

Skildu eftir skilaboð