Var vísað af spítala með fótbrot fyrir að neita að taka Covid-próf

frettinInnlent, Viðtal2 Comments

Axel Pétur Axelsson segist á tímabili hafa óttast um líf sitt vegna þeirra samsæriskenninga sem hann hefur um árabil talað um opinberlega. Axel, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar  hefur stundum verið kallaður samsæringur Íslands:

Óttaðist um líf sitt

„Það var sannarlega tímabil þar sem ég óttaðist mjög um líf mitt. Ef þú horfir á Frelsi TV og ferð í gegnum það, þar sem er gríðarlegt magn af efni, þá sérðu tímabilið þar sem ég ég óttaðist um líf mitt. Ég óttaðist að ég væri að setja fram upplýsingar sem gætu orðið til þess að ég væri í beinni hættu. En svo gekk þetta tímabil yfir og ég áttaði mig á því að þetta snýst ekki um persónur og leikendur, segir Axel, sem fer í þættinum yfir það hvernig þetta byrjaði allt saman hjá honum:

„Þetta byrjaði upphaflega með því að ég mætti í þætti á Útvarpi Sögu og ákvað þá að verða samsæringurinn, af því að það starf var alveg laust á Íslandi. Þannig að ég tók það eiginlega bara upp sem starfsheiti. Ég er mjög meðvitaður um að ég er umdeildur, en ég segi yfirleitt ekki neitt nema vera búinn að hugsa það vel og skoða það lengi. En það er kannski ekki skrýtið að fólk sé upp til hópa ekki mjög móttækilegt fyrir mörgu af því sem ég segi. Það eru rannsóknir og kenningar sem benda til þess að um 80% af fólki vilji mestmegnis bara tala um annað fólk. Svo er 16% sem vilja tala um hvað gerðist og tala um atburði, en ekki nema 3-4% sem vilja tala um alvöru heimspeki með gagnrýnni hugsun. Þannig að ef það á að fara á einhverja alvöru dýpt eru flestir bara ekki til í það. En auðvitað væri langbest að margt sem ég er að segja væri kolrangt. Þá væri heimurinn fallegur og góður."

 Í viðtalinu fara þeir Axel og Sölvi um víðan völl og spyr Sölvi hann meðal annars út í faraldurinn og aðgerðir tengdar honum. Axel Pétur hefur mjög sterkar skoðanir á aðgerðum í kringum faraldurinn og segist sjálfur hafa fengið sterkar afleiðingar af því að taka ekki bóluefni og neita að fara í Covid próf:

Vísað út af spítala fótbrotinn

„Mér var vísað út af spítala þó að ég væri fótbrotinn, af því að ég neitaði að láta stinga pinna upp í nefið á mér. Ég þurfti að yfirgefa sjúkrahúsið þó að ég væri sannarlega fótbrotinn, en ég gat ekki hugsað mér að taka þátt í þessu. Það skaðast ekki allir af bóluefninu við Covid eða pinnunum sem er stungið upp í nefið á okkur, en ég vil ekki sjá þetta. Fyrir mér er fólkið sem hefur veitt mesta mótspyrnu í þessu tímabili ekkert annað en hetjur. Til dæmis ástralskur hjúkrunarfræðingur sem skipti út bóluefninu fyrir saltvatn í 8300 sprautum. Hún er núna fyrir dómstólum, en fyrir mér er hún bara hetja."

Axel, sem býr í Svíþjóð, á stóra fjölskyldu og segist una sínum hag nokkuð vel. Hann var orðinn leiður á því að búa á Íslandi og segist á ákveðinn hátt hafa verið orðinn langþreyttur:

„Ég flutti til Svíþjóðar fljótlega eftir hrunið. Ég hafði áður en ég flutti farið í hagsmunasamtök heimilanna og allt það dæmi og fann upp þetta svokallaða greiðsluverkfall. Ég var í mörgum störfum og var bara orðinn rosalega þreyttur og endaði á að flytja til Svíþjóðar þar sem ég er í dag. Ég var að vasast í 7 fyrirtækjum og var líka að vinna sem kerfisstjóri í Flensborg og mér var farið að leiðast rosalega. Ég á sex börn, fimm af þeim eru hjá mér hérna í Svíþjóð. Ég þekki það sem faðir að fyrir þeim er ég bara eins og spámaður og orð mín eru sannleikur. Það er eðlilegt og skiljanlegt, en að fullorðið fólk taki upplýsingum á sama hátt og lítil börn frá foreldrum sínum er eitthvað skrýtið. Það er hálf ógnvekjandi hvernig stór hluti fólks meðtekur allar upplýsingar án þess að hafa vott af gagnrýnni hugsun. Ég er oftast bara að benda á eitthvað sem liggur í augum uppi og fólkið sem stýrir hlutunum hefur meira að segja sagt sjálft. Ef það eru samsæriskenningar verður það bara að vera svoleiðis."

,,Árshátíð fasismans er í Davos"

Axel Pétur talar í þættinum um hópinn sem stýrir miklu í heiminum, meðal annars í gegnum ,,World Economic Forum". Axel segir að í raun séu fundir þeirrar stofnunar eins konar árshátíð fasismans í heiminum:

„Það sem er í gangi í Davos er í raun hátíð fasismans. Akademíska skýringin á fasisma er þegar stórfyrirtæki og stjórnvöld renna saman í eitt. Samruni einkafyrirtækja og ríkisvalds. Þeir eru ekkert að fela þetta í Davos, bara búnir að endurskýra þetta og kalla það ,,Public-Private partnership". Fyrir nokkrum árum síðan var þessu breytt úr leynifundum yfir í World Economic Forum og það var ákveðið að fara bara með allan óhreina þvottinn út, þannig að fólk getur bara kynnt sér þetta sjálft. Yfirskynið er að það sé verið að bjarga heiminum og þó að þetta sé allt fyrir opnum tjöldum virðist fólk ekki ná að opna augun. Svo þegar fólk spyr mann út í þetta er það svolítið eins og að einhver komi inn í langa bíómynd þegar það eru 5 mínútur eftir til að spyrja hvað sé að gerast. Þetta er löng saga og langur ferill og ef fólk þekkir ekki baksöguna er kannski eðlilegt að það kveiki ekki á perunni. Það er ákveðinn hópur sem stofnaði seðlabankann árið 1913 á Jeckyll Island og síðan þá er þessi hópur í raun búinn að vera sigurvegarinn í heiminum og stýrir flestu. Til þess að komast að þessu þarf ekki neitt annað en að hlusta á það sem þessi hópur segir og lesa það sem hann skrifar. Þetta er allt í gangi fyrir opnum tjöldum."

2 Comments on “Var vísað af spítala með fótbrot fyrir að neita að taka Covid-próf”

  1. Samruni ríkis og stórfyrirtækja, eftir stuttan tíma mun lýðræði og frjáls skoðunarskipti heyra sögunni til, og heimskir sauðir – almenningur – segja bara meeee. Sorglegt, mannkyninu er ekki viðbjargandi.

  2. Þetta er alveg satt að það er hálf ógnvekjandi hvernig stór hluti fólks meðtekur allar upplýsingar án þess að virðast hafa vott af gagnrýnni hugsun og filgir bara fjöldanum hversu vitlaust sem það er.

Skildu eftir skilaboð