Tugir grindhvala strönduðu í Melavík

frettinInnlendarLeave a Comment

Yfir fimmtíu grindhvalir syntu upp á land í Melavík á Ströndum á Árneshreppi í morgun.

Björn Axel Guðbjörnsson var á vettvangi í morgun og segir að þar hafi verið taldir minnst fimmtíu grindhvalir sem velkjast nú um í fjöruborðinu.

Í samtali við Vísi segist hann telja að engin leið sé að koma þeim til bjargar, þar sem miklar grynningar séu þar sem þeir syntu á land.

Ferðamenn hringdu á lögregluna og létu vita af vandræðum grindhvalanna. Búið er að tilkynna hvalrekann til Umhverfisstofnunar.

Image

Skildu eftir skilaboð