Veðurstofan hefur sent frá sér tilkyningu um að segulstormur sé á leið til jarðar og líkur séu á mikilli norðurljósasýningu í kvöld, hægur vindur og léttskýjað á Suðurlandi og suðvesturhorninu „og því tilvalið að grípa með sér heitan drykk, góðan vetrarfatnað og njóta utandyra,“ segir í færslu á Facebook-síðu Veðurstofunnar.
Kp-gildi stormsins er 7 af 9 mögulegum.
Sjá frekar á heimasíðu veðurstofunnar.