Ásaka markvörð í kvennalandsliðinu um að vera karlmann – vilja rannsókn

frettinErlent

Jórdanía ásakar nú nágrannaþjóð sína Íran um að stilla upp karlmanni í marki kvennalandsliðsins er þjóðirnar mættust í A-landsleik kvenna í knattspyrnu á dögunum. Knattspyrnusamband Jórdaníu vill staðfestingu þess efnis að markvörður Írans sé kvenkyns.

Þjóðirnar mættust í umspili um sæti á Asíumótinu þann 25. september síðastliðinn. Þann 5. nóvember síðastliðinn og lagði knattspyrnusamband Jórdaníu fram kæru. Vill sambandið að knattspyrnusamband Asíu, AFC, rannsaki málið.

Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Íran hafði betur og hin 32 ára gamla Zohreh Koudaei varði tvær vítaspyrnur í marki Íran. Forseti knattspyrnusambands Jórdaníu vill sannanir þess efnis að Koudaei sé kona.

Á fimmtudaginn svaraði Koudaei þessum ásökunum og hefur heitið því að lögsækja jórdanska knattspyrnusambandið fyrir „einelti“, eins og greint var frá í Daily Mail.

Maryam Irandoost, þjálfari Íran, hefur vísað ásökunum til föðurhúsanna og segir þetta vera leið Jórdaníu til þess að beina athygli frá súru tapi liðsins.

Ekki er enn komin niðurstaða í málið.