Justin Bieber mætti í alltof stórum jakkafötum á Grammy verðlaunin

frettinErlentLeave a Comment

Söngvaranum Justin Bieber tókst að stela sviðsljósinu af eiginkonu sinni og ofurfyrirsætunni Hailey Bieber, á rauða dreglinum á Grammy-verðlaunahátíðinni á sunnudagskvöldið.

Söngvarinn, sem er 28 ára, mætti á MGM Grand Garden and Arena í Las Vegas, í sérsniðnum Balenciaga jakkafötum sem voru í töluverðri yfirstærð.

Stjarnan klæddist jakkafötunum yfir þröngan hvítan stuttermabol og var í stígvélum með stáltá sem virtust einnig í yfirstærð. Söngvarinn toppaði svo herlegheitin með skærbleikri húfu sem auðvitað gerði gæfumuninn eins og sést á myndum.

Twitter gat ekki annað en að gert grín af tískunni og margir bentu á að hann væri alger eftirmynd af krakkanum í hinum fræga endi á kvikmyndinni Big, þegar Tom Hanks breytist aftur í barn.

Þetta minnir á lokasenuna í Big þegar þegar Tom Hanks breytist í 12 ára dreng, skrifar einn tístarinn.

Annar samanburður sem menn voru að grínast með var Talking Heads stjarnan David Byrne og jakkafötin hans. Hvern klæddu fötin betur?“ Bieber eða David Byrne í Talking Heads? spurði einn tístari.

Aðrir göntuðust með að klæðskeri Justin hefði ruglað saman málum hans og körfuboltahetjunnar Shaquille O'Neal sem er 2.16 metrar á hæð.

Skildu eftir skilaboð