Í leit að sannleikanum – máttur fyrirgefningarinnar

frettinLífið, ViðtalLeave a Comment

Arnar Þór Jónsson lögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins er með viðtalsþættina  Í leit að sannleikanum á Útvarpi Sögu.

Í dag var eiginkona Arnars, Hrafnhildur Sigurðardóttir sálgætir, gestur þáttarins og ræddu þau hjónin um mikilvægi fyrirgefningarinnar og hversu máttug fyrirgefningin er fyrir fólk sem á sára og erfiða reynslu að baki.

Hrafnhildur segir fyrirgefninguna mikilvæga vegna þess að aðeins með henni er hægt að leggja að baki erfiða reynslu sem fólk hefur þurft að bera með sér um langan tíma, jafnvel allt frá barnæsku. „Í fyrirgefningunni felist ekki syndaaflausn fyrir gerandann, heldur sé fyrirgefningin fyrst og fremst fyrir þann sem var brotið gegn til að hann geti haldið lífi sínu áfram og farið að byggja sjálfan sig upp og með því að fyrirgefa ekki haldi atburðurinn áfram að valda myrkri í sálinni og naga viðkomandi að innan, líkt og verið sé að taka inn eitur á hverjum degi með von um að það hafi áhrif á gerandann,“ sagði Hrafnhildur.

Hrafnhildur minnti á að hver og ein manneskja geymi bæði eitthvað gott og eitthvað illt. Það sé undir okkur sjálfum komið hvort verði meira ráðandi, hið góða eða hið illa. Næra þurfi það góða til að það hafi alltaf yfirhöndina, en reyta þurfi upp hið illa eins og arfann í garðinum.

Viðtal þeirra hjóna má hlusta á hér.

Skildu eftir skilaboð