Knattspyrnugoðsögnin Pelé látin

frettinErlent, Íþróttir2 Comments

Brasilíska knatt­­spyrnu­­goð­­sögnin Pelé er látin 82 ára að aldri. Þessu greindi Tariq Panja hjá New York Times frá á Twitter í kvöld.

Pelé hafði verið að berjast við ristilkrabbamein sem var fjarlægt á síðasta ári. Hann var svo fluttur á sjúkrahús fyrr í þessum mánuði og heilsu hans fór skyndilega að hraka þar til hann lést.

Pelé af mörgum talinn einn af allra bestu knattspyrnumönnum sögunnar. Hann er sagður hafa skorað 1.281 mark í 1.363 leikjum á 21 árs löngum ferli, þar af 77 mörk í 92 leikjum fyrir brasilíska landsliðið. Hann er enn markahæsti leikmaður Brasilíu frá upphafi, en Neymar er þó búinn að jafna metið.

Pelé skilur eftir sig eiginkonu og sjö börn.

2 Comments on “Knattspyrnugoðsögnin Pelé látin”

  1. Þar er farinn einn besti knattspyrnumaður sögunar. Pele og Maradonna eru þeir tveir bestu í sögunni.

Skildu eftir skilaboð