Eftir stöðuga hækkun síðustu fimm árin hefur Tesla tilkynnti um að fyrirtækið ætli að lækka verðið umtalsvert á mest seldu bílunum um allt að 20% í Evrópu og Bandaríkjunum til að mæta aukinni samkeppni á rafbílamarkaði. Tesla hefur tvisvar á síðustu mánuðum lækkað verðið á bílum sínum í Kína.
Ódýrasta rafbíllinn, 3 RWD, hefur lækkað úr $46.990 í $43.990, en 5 sæta Y Long Range lækkaði um 20% úr $65.990 í $52.990. Það þýðir að síðarnefnda tegundin uppfyllir nú skilyrði fyrir $7.500 skattafslátt í Bandaríkjunum, þannig að endanleg verðlækkun verður því $20.500, eða yfir 30 prósent.
Hlutabréf í Tesla hafa lækkað mikið síðasta árið og féllu um 4,5% á föstudag, en hækkuðu eitthvað á ný seinni part dags.
Á síðasta ári framleiddi Tesla 1,3 milljónir bifreiða, eða 40% meira en árið áður.
One Comment on “Verð á Teslu lækkar um 20% í Evrópu og Bandaríkjunum”
Tesla hefur alltaf verið rekið á ríkisstyrkjum og Elon Musk (ríkið) keypti twitter með útblásturs kvótasölu.