Dana sagði að Josh Yoder, forsprakki US Freedom Flyers, hópi flugmanna gegn skyldubólusetningum í Bandaríkjunum, fái fyrirspurnir frá auðmönnum sem vilja ráða óbólusetta flugmenn til að fljúga með þá.
„Þeir hafa þann lúxus að geta valið, vegna þess að enn er mikið framboð af óbólusettum flugáhöfnum í Bandaríkjunum því að fyrirtækin sem þeir vinna hjá skylduðu þá ekki í [Covid] bólusetningu.
„Þessir auðugu kaupsýslumenn heimta óbólusetta áhöfn í viðskiptaferðir sínar,“ bætti Dana við. „Farþegar almennra flugfélaga hafa ekki þennan lúxus.“
Newspunch segir frá því að skipuleggjendur WEF fundarins í Davos hafi gert að skilyrði að óbólusettir flugmenn flygju þangað með gestina, en þeir vísuðu ekki í neina heimild sem styður það.
Josh Yoder staðfesti að hafa sagt að auðmenn hefðu samband vegna óbólusettra flugmanna, en vildi undirstrika að hann hefði ekkert um það sagt hvort skipuleggjendur WEF hefðu haft samband við sig sérstaklega.
Click bait journalism is a scourge. I never said that the WEF/Davos has reached out looking for unvaccinated pilots. What I did say was that wealthy businessmen have reached out to me for that purpose. Unfollow anyone spreading this garbage.@USFreedomFlyers @TuckerCarlson
— Josh Yoder (@JoshYoder) January 15, 2023