Akureyrarbær greiðir Samtökunum´78 rúmar sjö milljónir fyrir þjónustu næstu árin

frettinHinsegin málefni, InnlentLeave a Comment

Þann 5. maí sl. var undirritaður sérstakur samstarfssamningur Akureyrarbæjar og Samtakanna ´78 um þjónustu og fræðslu sem samtökin eiga að veita sveitarfélaginu. Samninginn undirrituðu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Daníel E. Arnarson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78.

Þetta kemur fram á síðu Akureyrarbæjar þar sem segir einnig: „fræðsla Samtakanna ’78 er vönduð hinseginfræðsla, byggir á gagnreyndum aðferðum, nýjustu rannsóknum, og fer fram í góðu samráði við hinsegin fólk. Samkvæmt samningi sveitarfélagsins við samtökin verður veitt fræðsla um kynhneigð, kynvitund, kyntjáningu og kyneinkenni fólks. Markmið fræðslunnar er fyrst og fremst að veita þekkingu á hinsegin málefnum.“

Þá segir að samningurinn kveði á um fræðslu til starfsfólks grunnskóla, nemenda grunnskóla, starfsfólks leikskóla, ungmenna í félags- og frístundamiðstöðvum, til stjórnenda sem starfa hjá Akureyrarbæ og til þjálfara íþróttafélaga. Auk þess séu í samningnum ákvæði um að ungmenn á Akureyri fái aðgang að ráðgjöf Samtakanna ´78 endurgjaldslaust.

Samningurinn gildir frá haustönn 2023 til og með vorönn 2026 og er samningsfjáhærð alls 7.061,453 krónur. Hér má lesa samninginn.

Skildu eftir skilaboð