Umboðsmaður Alþingis spyr út í löggæslustörf erlendra lögreglumanna hér á landi

frettinInnlentLeave a Comment

Umboðsmaður alþingis hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá dómsmálaráðherra í tilefni af veru vopnaðra og einkennisklæddra erlendra lögreglumanna í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem fram fór hér á landi um miðjan maí.

Þetta kemur fram á síðu umboðsmanns:

„Í kjölfar frétta um að erlendir lögreglumenn hefðu verið að störfum í miðborginni og í samskiptum við almenning aflaði umboðsmaður sér frekari upplýsinga um fyrirkomulagið frá ríkislögreglustjóra. Samkvæmt henni var erlendu lögregluþjónunum fyrst og fremst ætlað að starfa innan svæðis sem lokað var fyrir almenningi en þó þannig að krafta þeirra nyti einnig við á stærra svæði í miðborginni ef þörf kræfi. Ekki kom til þess samkvæmt svörum ríkislögreglustjóra og var henni ekki heldur kunnugt um að erlendu lögreglumennirnir hefðu haft afskipti af íslenskum ríkisborgurunum.

Umboðsmaður telur málið samt sem áður gefa tilefni til ákveðinna spurninga um hvernig ríkislögreglustjóri nýtir heimild sína samkvæmt lögreglulögum til þess að taka á móti erlendum lögreglumönnum og fela þeim lögregluvald hér á landi. Í bréfi umboðsmanns er minnt á að samkvæmt stjórnarskrá fara forseti og önnur stjórnvöld með framkvæmdarvald í landinu. Ekki fari á milli mála að meðferð lögregluvalds á íslensku yfirráðasvæði, ekki síst heimild lögreglu til að beita valdi við skyldustörf, falli þar undir. Skorður séu á því að hvaða marki hægt sé að kveða á um framsal stjórnarskrábundinna valdheimilda til erlendra aðila, þótt í framkvæmd hafi verið litið svo á að slíkt sé ekki útilokað að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þegar litið sé til þessa og markmiða lagaheimildar ríkislögreglustjóra sé ekki hægt að leggja til grundvallar að hann hafi ótakmarkaða heimild að þessu leyti.

Dómsmálaráðherra er því beðinn um að upplýsa hvort hann hafi skoðað að nýta heimild sína samkvæmt lögreglulögum til að setja nánari reglur um það hvenær og í hvaða tilgangi ríkislögreglustjóra sé heimilt að fela erlendum lögregluþjónum lögregluvald hér á landi. Einnig er spurt hvort ráðherra telji að orðalag lagaheimildarinnar kunni að vera of víðtækt en í þessu sambandi er bent á að það virðist ekki útiloka að erlendum lögreglumönnum séu falin hvers kyns lögreglustörf hér á landi, þ. á m. þau sem krefjast samskipta við almenning. Þá óskar umboðsmaður eftir að ráðuneytið upplýsi, eftir atvikum með atbeina ríkislögreglustjóra, hvort litið hafi verið svo á að erlendu lögreglumennirnir sem hér voru við störf hafi borið sömu lagaskyldur og íslenskir og hvort gengið hafi verið út frá því að þeir féllu undir starfssvið nefndar um eftirlit með lögreglu.

Beðið er um svör og viðeigandi gögn eftir því sem þurfa þykir fyrir 24. júní nk.

Skildu eftir skilaboð