Hakkarafaraldur, fjárkúgun og þjófnaður

frettinFræga fólkið, Innlent, SvindlLeave a Comment

Mikið hefur verið um fjármálasvindl hér á landi og kannast margir við það að fá ýmis konar skilaboð send reglulega, hvort sem það kemur á netfangið eða beint í símann.

Skilaboðin líta út fyrir að koma frá fyrirtækjum eins og Póstinum, DHL og fleirum þar sem óskað er eftir að fólk setji inn korta upplýsingar sínar í gegnum greiðsluhlekk.


Á síðasta ári töpuðu fórnarlömb netsvindlara um 254.445.158 kr. samtals, þ.e. miðað við það sem tilkynnt var til lögreglunnar. Frá því að byrjað var að taka saman tölfræði frá loka árs 2017 hefur mælanlegt heildartjón af netglæpum á Íslandi verið yfir milljarð króna, n.t.t. 1.280.627.378 kr.

Alvarlegasta tilvik þessa árs er mál einstaklings sem tapaði 79.696.224 kr. á einungis 53 dögum. Eftir að glæpamennirnir höfðu tæmt reikninga hans, þá leiðbeindu þeir honum með að taka lán í öllum þremur stærstu viðskiptabönkum Íslendinga.

Svindlararnir geta birst í ýmsum formum. Sem dæmi má nefna falskar fyrirtækjasíður, falskir ástvinir, fjárfestasíður, vörusvik, leigusvik, fjárkúgun o.s.frv.

Einnig hefur sprottið upp gífurlegur faraldur vegna hakkara sem ræna samfélagsmiðlasíðum af notendum, í þeim tilgangi að fjárkúga með þeim hætti að einstaklingurinn þarf að greiða peninga til að endurheimta síðuna.

Söngvarinn og skemmtikrafturinn Jógvan Hansen lenti í klóm hakkara nýlega. Facebook síðu hans, sem hann hafði verið með síðan árið 2008, ásamt Instagram síðu hans með yfir 10.000 fylgjendum var rænt. Hakkararnir þóttust vera frá Instagram og buðu honum „bláa merkið“ sem margir fá á Instagram, eftir ákveðinn fjölda fylgjenda. Jógvan hafði á þeim sama tíma verið nýbúinn að sækja um „bláa merkið“ og var því hæst ánægður með skilaboðin. 

„Ég samþykkti að sjálfsögðu að fá merkið með því að smella á hlekkinn sem fylgdi póstinum en þá voru þeir búnir að hakka sig inn hjá mér,“segir Jógvan.

Svindlið gekk þannig fyrir sig að um leið og Jógvan smellti á hnappinn var hann búin að hleypa hökkurum inn á aðgang sinn og þeir hófust þá fljótt handa við að skipta út netfanginu og breyta um lykilorð svo hann kæmist örugglega ekki inn á aðganginn sinn.

„Meðan á þessu stóð hringdu þeir stanslaust í mig og áreittu, heimtuðu að ef ég myndi ekki borga þeim, myndu þeir eyða aðgangi mínum. Ég tek ekki þátt í svona fjárkúgun og að sjálfsögðu kemur ekki til greina að ég greiði þeim eina einustu krónu,’’ segir Jógvan.

Jógvan ákvað að láta þetta ekki á sig fá og stofnaði nýjar síður. Hægt er að sýna honum stuðning og fylgja nýrri Instagram síðu hans hér.

„Þetta kom mér mikið á óvart og mér hefði alls ekki dottið í hug að það væri eitthvað loðið við þetta fyrr en ég fékk skilaboðin, ‘’Hi dude, I hacked your instagram, facebook and snapchat.. I will give it back for a fee. If you block or don’t reply I will delete it’’

„Þetta er að sjálfsögðu skellur en ég ákvað að vera rólegur í gegnum þetta og halda áfram með lífið,’’ segir Jógvan.

Skildu eftir skilaboð