„Fartölvan frá helvíti“: Hunter Biden og félagar hafa framið a.m.k. 459 lögbrot

frettinErlent, Skýrslur1 Comment

Marco Polo, sjálfseignarstofnun stofnuð af Garrett Ziegler, hefur gefið út 630 blaðsíðna greiningu á „fartölvu frá helvíti“ Hunter Biden. Skýrslan veitir vegvísi fyrir þingmenn og saksóknara í GOP til að sækjast eftir ákæru á hendur syni Joe Biden forseta og viðskiptafélögum hans.

Hópur netspæjara Garrett Ziegler, hefur afhjúpað skýrslu eftir áralanga rannsókn á hinni alræmdu „fartölvu frá helvíti“ Hunter Biden. Ziegler-teymið segist hafa fundið að minnsta kosti 459 lögbrot af hálfu sonar Bandaríkjaforseta og félaga hans.

Hin gríðarlega umfangsmikla skýrsla fer yfir tölvupóst fartölvunnar, myndbönd, dagatöl, ljósmyndir, símaskrár, fjárhagsskjöl og fleira, á meðan hún sýnir gríðarlegan fjölda skjámynda. Meðal meintra glæpa Hunters eru að þjóna sem umboðsmaður fyrir erlenda aðila án þess að upplýsa um það, skattsvik, fölsun viðskiptaskjala, vændi, klám án samþykkis og dreifingu á fíkniefnum, er að finna í gögnunum, að sögn skýrsluhöfunda.

Marco Polo, segir að markmið rannsóknarinnar sé að veita þingmönnum og saksóknara Bandaríkjaþings vegvísi til að leggja fram ákærur á hendur Biden. Hópurinn hefur þegar sent skýrsluna til allra þingmanna.

Nýlega var gefin út bók 630 bls. bók sem inniheldur samantekt skýrslunnar og má skoða hana í heild sinni hér. 

Bókin inniheldur m.a. upplýsingar um 140 viðskiptaglæpi, 191 kynferðisglæpi og 128 fíkniefnaglæpi sem Biden er bendlaður við, hægt er að kaupa bókina hér.

One Comment on “„Fartölvan frá helvíti“: Hunter Biden og félagar hafa framið a.m.k. 459 lögbrot”

  1. Joe Biden og sonur hans, Hunter, eru stórglæpamenn. Það er merkilegt hvernig vinstri-sinnaðir fjölmiðlar halda hlífðarhendi yfir þeim. Ef þessir fjölmörgu glæpir snertu Donald Trump og einn af hans sonum þá væri allt á öðrum endanum í fjölmiðlaheiminum, og það vitum við öll. En Biden er demókrati og þóknanlegur valdaelítunni.

Skildu eftir skilaboð