Tedros mappan – Verður yfirmaður WHO voldugasti maður heims?

frettinErlent, Kla.Tv, WHOLeave a Comment

Kla.Tv skrifar:

Gæti Covidkrísan, með öllum sínum frelsistakmörkunum, endurtekið sig í mun alvarlegri mynd?

Í dag tekur Kla.tv til nánari skoðunar manninn sem til stendur að valdeflist gífurlega og getur þá mjög auðveldlega lýst yfir nýjum heimsfaröldrum. Það er Tedros Adhanom Ghebreyesus, núverandi framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Hann er fyrsti Afríkumaðurinn til að gegna þessu embætti og jafnframt fyrsti yfirmaður WHO sem er ekki læknir. Hann var valinn á lista tímaritsins Time sem einn af 100 áhrifamestu mönnum ársins 2020. Hvernig kom til þessa stjarnfræðilega hraða í uppleið Tedros, sem fæddist í Asmara sem nú er Erítrea árið 1965, og var kjörinn framkvæmdastjóri WHO í maí 2017? Eftirfarandi 5 þætt mappa um Tedros dregur fram í dagsljósið skelfilegar staðreyndir sem hingað til hafa verið almenningi að mestu huldar:

1. hluti: Uppleiðin til yfirmanns WHO

Tedros stundaði nám við háskólann í Asmara og hlaut BA-gráðu í líffræði árið 1986. Hann gekk síðan til liðs við Eþíópíska heilbrigðisráðuneytið sem lýðheilsusérfræðingur ungmenna. Árið 1992 lauk hann meistaranámi í ónæmisfræði smitsjúkdóma frá háskólanum í London og lauk þar með frekara námi. Samkvæmt Wikipedia gekk Tedros til liðs við kommúnista Tigrayan People's Liberation Front – stytt TPLF - árið 1991, sem ásamt öðrum eþíópískum frelsissamtökum steypti einræðisherranum Mengistu Haile Mariam af stóli árið 1991 eftir langvarandi vopnuð átök. Í kjölfarið ríkti TPLF til ársins 2018. Sem meðlimur TPLF-flokksins hækkaði Tedros skref fyrir skref í tign og var skipaður í eftirfarandi háttsettu embætti:

2001: Yfirmaður Tigray svæðisheilbrigðisskrifstofu
2003: Aðstoðarheilbrigðisráðherra Eþíópíu
2005 – 2012: Heilbrigðisráðherra Eþíópíu
2012 – 2016: Utanríkisráðherra Eþíópíu
2017: Kosinn framkvæmdastjóri WHO

Eldfimt er að TPLF eru ofbeldisfull samtök með kommúnískt agenda. TPLF hafa verið skráð sem hryðjuverkasamtök í Global Terrorism Database síðan 1976, vegna þess hve oft þau tóku þátt í mannránum og gíslatöku. Á næstum 30 ára valdatíma sínum framdi TPLF hin alvarlegustu mannréttindabrot. Sem háttsettur meðlimur stjórnmálaráðsins og lengi ráðherra TPLF verður Tedros að teljast samábyrgur þessum glæpum! Jafnvel eftir að hann var kjörinn sem framkvæmdastjóri WHO árið 2017 virðast gömlu tengslin hans í hinum ofbeldisfullu TPLF samtökum enn vera í besta formi. Þann 19. nóvember 2020 sakaði Birhanu Jula Gelalcha starfsmannastjóri Eþíópíu, Tedros opinberlega um að styðja hryðjuverkahópinn með því að reyna að útvega vopn fyrir TPLF. Niðurstaða: Hinn ofbeldisfulli hryðjuverkahópur TPLF varð stökkbretti fyrir Tedros! Þetta varpar dökkum skugga á frama hans!

2. hluti: Háalvarlegir mannréttindaglæpir

Eftirfarandi brot úr opinberum ársskýrslum mannréttindasamtakanna Amnesty International og Human Rights Watch (HRW) frá 2005 – 2016 skjalfesta ólýsanleg grimmdarverk eþíópískra stjórnvalda undir stjórn Tedros:

2006: Handtaka 76 stjórnarandstæðinga og blaðamanna. Fjölmargar pyntingar og gæsluvarðhöld - jafnvel skólabarna - af ríkisstjórnarstofnunum.

2007: Stjórnarhermenn brenna heilu þorpin, framkvæma opinberar aftökur, nauðga konum og stúlkum, handtaka grunaða að geðþótta og í mörgum tilfellum pynta þá og drepa. Þúsundir neyðast til að flýja heimili sín. Umskurður á kynfærum kvenna er mjög útbreiddur.

2008: Stjórnarherinn framkvæmir fjöldahandtökur, pyntingar, nauðganir, aftökur án dóms og laga. Ráðast inn í mosku og drápu 21 manns, sjö þeirra skornir á háls.

2009: Mannréttindaástand versnaði enn frekar! Ný borgaraleg samfélagslög eru „mest takmarkandi af öllum slíkum lögum í heiminum,“ samkvæmt Human Rights Watch.

2010: Dagblöðum lokað, ritstjórar flýja af ótta! Stjórnarflokkurinn vinnur þingkosningar með 99,6% atkvæða. Getur maður hér yfirhöfuð enn talað um frjálsar kosningar?

2011: Sendinefnd Amnesty International vísað frá Eþíópíu!

2012: Jafnvel eftir dauða valdhafans Meles, sem leiddi Eþíópíustjórn frá 1995 - 2012 og skipaði Tedros sem ráðherra, batnaði mannréttindaástandið í Eþíópíu alls ekki.

2013: Afríkuskýrslan bendir á að eftir dauða Meles reis Tedros upp til eins af þremur áhrifamestu stjórnmálamönnum TPLF.

2014: Ríkisstjórnin vaktar símtöl reglulega. Allt að 1,5 milljónir þorpsbúa á að flytja nauðungarflutninga undir því yfirskini að bæta þurfi grunnþjónustuna.

2015: Amnesty International tilkynnir um grafalvarlegar pyntingar á lögreglustöðvum og í ríkisreknum fangelsum í landinu, þar á meðal brunasár og raflost.

2016: Human Rights Watch greinir frá því að eþíópískar öryggissveitir hafi drepið í héruðunum Oromia og Amhara meira en 500 mótmælendur sem að mestu leiti voru friðsamlegir.

Abiy Ahmed, núverandi forsætisráðherra Eþíópíu sem hlaut friðarverðlaun Nóbels 2019, staðfesti skýrslur Human Rights Watch og Amnesty fyrir eþíópíska þinginu eftir friðsamlegt framsal valds árið 2018. Hann lýsti aðgerðum sinnar fyrri ríkisstjórnar sem hryðjuverkum. Samkvæmt frétt bresku fréttagáttarinnar „The Expose“ var TPLF, sem ríkti á árunum 1991 til 2018, „ein spilltasta og grimmilegasta þjóðarmorðsstjórn sem stigið hefur fæti á jörðina á síðustu 30 árum“. Sem leiðandi meðlimur þessarar stjórnar er Tedros vitorðsmaður! Focus online greinir frá því að bandaríski hagfræðingurinn David Steinmann sem var tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels árið 2019, hafi höfðað mál gegn Tedros við Alþjóðlega sakamáladómstólinn í Haag síðla árs 2020. Hann sakaði hann um þjóðarmorð í Eþíópíu vegna þess að Tedros var einn þriggja í lykilákvörðun um „þjóðernishreinsun“. Tedros bar því ábyrgð á ótal fangelsunum, pyntingum og morðum á Amharas, Konsos, Oromos og sómalískum ættbálkum.

Breska fréttagáttin The Expose, segir í samantekt um valdatíma Tedros í Eþíópíu: „Ríkisstjórn TPLF hefur […] framkvæmt ótal fjöldamorð. Dr Tedros var óaðskiljanlegur hluti af TPLF, sem hélt völdum sínum með því að slátra öllum sem þorðu að mótmæla kúgandi aðferðum þess.“ Samkvæmt ástralska fréttatímaritinu The Spectator hefur Tedros aldrei gagnrýnt hin skjalfestu voðaverk opinberlega, hvað þá beðist afsökunar á þeim. Frekar, eftir að hafa tekið við embætti yfirmanns WHO, skipaði Tedros þáverandi forseta Simbabve, Robert Mugabe, sem velvildarsendiherra WHO. Mugabe hefur einnig framið alvarleg mannréttindabrot. Þetta sýnir að Tedros virðist ekki hafa neina vitund um ranglæti, jafnvel þegar hann stendur frammi fyrir alvarlegustu mannréttindabrotum. Hann varð því að afturkalla skipun Mugabes umsvifalaust eftir ofsafengin alþjóðleg mótmæli.

Ályktun: Hrottalegustu glæpir gegn almennum borgurum á sínum tíma sem ábyrgur ráðherra draga fram í dagsljósið samviskuleysi hans og gera hann því óásættanlegan!

3. hluti: Afbrot sem heilbrigðisráðherra

Einmitt varðandi meðhöndlun sína á farsóttum hafa alvarlegustu ásakanirnar verið settar fram gagnvart núverandi yfirmanni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Í embættistíð sinni sem heilbrigðisráðherra Eþíópíu á hann ítrekað að hafa hunsað kólerufaraldur árin 2006, 2009 og 2011. Sagt er að Tedros hafi þrýst á heilbrigðisstarfsmenn á staðnum til að lýsa kólerunni sem þegar hafði greinst sem „vatnskenndum niðurgangi“. Tölvupóstum sem hefur verið lekið leiddu í ljós að hann hafði meiri áhyggjur af efnahagtjóni Eþíópíu en því fólki sem dó í hrönnum. Larry Gostin, bandarískur lagaprófessor í heilbrigðisrétti sagði við New York Times: „Dr. Tedros […] bar skylda til að segja ráðamönnum sannleikann og að bera kennsl á og tilkynna kólerufaraldur heiðarlega sem sannað var að hafði staðið yfir nokkurt skeið“. Samkvæmt opnu bréfi frá þekktum bandarískum læknum leyndi Tedros sem starfandi framkvæmdastjóri WHO, enn og aftur kólerufaraldri í Súdan árið 2017!

Læknarnir skrifuðu: „Vanræksla þín við að koma með til Genfar sýni af hægðum fórnarlambanna í Súdan til opinberrar staðfestingar á kóleru gerir þig að vitorðsmanni í hræðilegri þjáningu og dauða […]. Daglega staðfesta nýjar skýrslur að það sé í raun kólerufarsótt.“ Samkvæmt bresku fréttagáttinni The Expose, leyndi Tedros ekki aðeins kólerufaraldrinum heldur var hann ábyrgur sem heilbrigðisráðherra, og var því einnig samsekur áralöngum hömlunum á matvælum og lyfjum fyrir sómalska íbúa í Ogaden, nánast þjóðarmorði. Á meðan hver kólerufaraldurinn á fætur öðrum stóð yfir tók hann þátt í að hrekja Rauða krossinn og Lækna án Landamæra út úr Ogaden, sem olli dauða óteljandi fólks nokkurra sögulegra hungursneyða og farsótta. Enn fremur er heilbrigðisráðuneytið sem hann veitti forstöðu, sagt hafa staðið fyrir fjölda ófrjósemisaðgerða til stjórnunar fólksfjölgun gegn Amhara þjóðarbrotinu. Notuð voru bóluefni sem gerðu konurnar ófrjóar.

NIÐURSTAÐA: Fjölmargir þaggaðir kólerufaraldar og hindrun á hjálparsendingum til ákveðinna þjóðernisættbálka gera Tedros einnig vanhæfan sem heilbrigðisráðherra!

4. hluti: Tengslanet Tedros

Margir óháðir fréttamenn komast því að eftirfarandi niðurstöðu: Tedros Adhanom Ghebreyesus hefði aldrei átt að vera kjörinn forstjóri WHO! Hann hefði átt að vera ákærður fyrir glæpi gegn Eþíópíusku þjóðinni! Komið hefur í ljós að hann er hryðjuverkamaður og alvarlegur glæpamaður! En hvernig gat það gerst að hann væri engu að síður kjörinn yfirmaður WHO? Mjög áhugavert er að Wikipedia greinir frá því hvernig Tedros var í tíð sinni sem heilbrigðisráðherra Eþíópíu mjög ákafur í því að koma á tengslum við alþjóðlegar lykilpersónur. Hér eru nokkur dæmi:

Tengslanet við Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna Hann hitti Clinton fljótt persónulega, bæði í upphafi ráðherratíðar sinnar og sem framkvæmdastjóri WHO. Hann lýsti Tedros sem „einum hæfasta embættismanni sem ég hef unnið með“. Tedros var boðið að tala á Clinton Global Initiative Annual Meeting árið 2015. Aftur á móti hjálpaði Tedros Clinton-stofnuninni að fá 100 milljóna dollara framlag frá mjög vafasömu sænsk-kanadísku námufyrirtæki sem einnig átti viðskipti við afríska einræðisherra og marxíska uppreisnarmenn, og sinnti námuvinnslu í bága við mannréttindi.

Tengslanet við Bill Gates. Síendurtekið birti Tedros opinberar færslur frá persónulegum fundum sínum með Gates. Tedros hefur gegnt æðstu stöðum í samtökum mjög tengdum Gates, eins og Global Fund eða Gavi Foundation. Gates var stóri leiðbeinandinn hans og studdi mjög framboð Tedros til yfirmanns WHO. Þetta vekur upp þá spurningu hversu sjálfstæður Tedros í raun og veru sé gagnvart næststærsta styrktaraðila WHO. Til dæmis er sagt að Gates hafi haft áhrif á tilmæli WHO um að bólusetja ekki börn gegn kórónuveirunni voru felld úr gildi.

Tengslanet við Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna Með góðu sambandi sínu við fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Obama, tókst Tedros að fá Bandaríkin til að tilnefna Eþíópíu sem eitt af US Global Health Initiative Plus löndunum árið 2010 sem gaf landinu gríðarlega fjármögnun til lýðheilsuverkefna sem samkvæmt greinendum runnu títt í annan skuggalegan farveg.

Tengslanet við Klaus Schwab Tíst frá Tedros sýnir hann með Klaus Schwab stofnanda WEF, þar sem hann fullvissar hann um nánara samstarf við WEF. Er það í staðinn fyrir að styðja framboð hans til yfirmanns WHO? Þessi tenging er örugglega vafasöm, þar sem Klaus Schwab er aðalstjórnandi í Great Reset og fylgir því markmiði að enginn ætti að eiga neitt lengur. Náin tengsl Tedros við kommúnista- og alræðisstjórnina í Kína eru einnig augljós. Kína varð stærsti bakhjarl Eþíópíu undir stjórn Tedros, þar sem framlög jukust úr $345.000 árið 2000 í $44 milljónir árið 2017 – til meintra fæðu- og flóttamannaáætlana. Í gegnum Tedros Connections hefur Kína einnig orðið helsti vopnasali Eþíópíu og stærsti viðskiptaaðili. Eþíópía er því nú kölluð „Litla Kína“ í Austur-Afríku vegna þess hve það er undir miklum áhrifum frá Kína.

Í gegnum þessi fjölmörgu tengsl opnaði Tedros mjög ábatasamar peningauppsprettur strax í upphafi ferils síns svo að gífurlegar fjárhæðir streymdu til Eþíópíu sem hefði aftur átt að leiða til mikillar velmegunar um alla Eþíópíu. Hins vegar staðfesta fjölmargar skýrslur misnotkun stjórnvalda á þessum fjármunum - t.d. greinir Zeit Online frá því í október 2010 að þróunaraðstoðarsjóðir hafi verið notaðir til að bæla niður gagnrýnendur ríkisstjórnarinnar. Í skýrslu útgefinni árið 2011 af Global Financial Intelligence* - í stuttu máli GFI - kom í ljós að upphæð ólöglegra fjármuna sem hurfu frá Eþíópíu árið 2009 nam alls 3.26 milljörðum dala. Þetta er tvöföldun miðað við árið áður. Upphæðin er langt umfram heildarútflutning Eþíópíu upp á um 2 milljarða dollara.

Í skýrslunni eru helstu ástæður þess nefndar sprenging í spillingu stjórnvalda, hersins og fjármálageirans. Þar sem ríkisstjórnin er sérstaklega nefnd fyrst leikur sterkur grunur að Tedros hafi einnig tekið ríkan þátt í spillingu og fjársvikum. Svara fyrrnefnd tengslanet ekki með óyggjandi hætti spurningunni um hvernig standi á því að Tedros hafi verið kjörinn framkvæmdastjóri WHO þrátt fyrir augljósa og afar vafasama fortíð? Studdu hinir öflugu alþjóðlegu stefnufræðingar sem nefndir voru,vframboð hans einmitt af þeirri ástæðu? Vegna þátttöku hans í hinu alvarlegustu glæpum geta þessir baktjaldamakkarar beitt óhindrað áhrifum sínum. En þetta sýnir líka á áhrifamikinn hátt að þeir víla ekki fyrir sér að styðja jafnvel verstu glæpamenn til æðstu embætta.

NIÐURSTAÐA: Alþjóða stefnufræðingar (e.global strategists) nátengdir Tedros hafa gert hann að yfirmanni WHO!

5. hluti: Gegnum heilbrigðiseinræði til heimsyfirráða

Jafnvel á meðan kórónakrísan stóð takmarkaði Tedros með tilmælum sínum um heimsfaraldur gríðarlega frelsi næstum allra í heiminum. Að mestu hulinn augum almennings skipuleggja Tedros og höfuðpaurar hans næsta valdarán: Stórfellda aukningu valds hans hjá öllum 194 aðildarríkjum WHO - og þar með nánast um allan heim! Hann hyggst ná þessu markmiði með tveimur aðgerðum sem hefðu alvarleg áhrif á allt mannkyn:

Heimsfaraldurssamningur WHO Heimsfaraldurssáttmáli WHO á að liggja fyrir í endanlegri útgáfu fyrir maí 2024 á 77. Alþjóðaheilbrigðisþinginu og skal þá fullgiltur af aðildarríkjunum 194. Með þessum sáttmála yrði WHO, ásamt forstjóra sínum Tedros, að algjörum leiðtoga í alþjóðlegri heilbrigðisstefnu. Tedros gæti sett nýjar, víðtækar reglugerðir með innleiðingu nýrra stofnana ólýðræðislega kjörinna fulltrúa án frekari samþykkis þjóðþinga. Hann gæti á Óæskilegar upplýsingar gæti hann stórfellt ritskoðað sem svonefnda „upplýsingaróreiðu“!

Breytingin á alþjóðlegum heilbrigðisreglugerðum WHO sem áður var ráðgefandi, á að verða lagalega bindandi alþjóðlegt yfirvald. Í stuttu máli: Ráðleggingar verða skipanir! Fella skal á brott kaflann um að taka tillit þurfi til mannréttinda og grundvallarfrelsis! Tedros gæti þá þegar lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu ef um yfirvofandi hugsanlega hættu væri að ræða og þar með gert til dæmis lyf að skyldumeðferð, útdeilt lögboðnum bólusetningum, innleitt lögboðin bólusetningarvottorð eða sett ferðatakmarkanir.

Allar fyrirskipaðar ráðstafanir yrðu að koma til skuldbundinna framkvæmda hjá öllum aðildarríkjum

Nánari upplýsingar er að finna í útsendingum sem hér birtast. Breytingin á alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðinni er gerð án samþykkis þjóðarinnar. Það sem ólýðræðislega kjörnir fulltrúar ákveða á 77. Alþjóðaheilbrigðisráðstefnunni í maí 2024 verður sjálfkrafa að alþjóðalögum eftir 10 mánaða tímabil. Aðeins skýr, tímabær andmæli geta bjargað frá þessari gildru. Þessi tvö fyrrnefndu verkefni frá Tedros verða klárlega að kallast „heimildarlög“. Samkvæmt Wikipedia gaf Richard Horton, aðalritstjóri hins virta læknatímarits The Lancet, Tedros, titilinn „Dictator-General“ (ísl. aðal-einræðisherra). Tedros reyndist slíkur þegar þann 23. júlí 2022: Tedros lýsti með geðþóttaákvörðun apabólu sem lýðheilsuneyðarástandi með alþjóðlegt umfang, þó að níu af hverjum 15 sérfræðingum hefðu greitt atkvæði gegn því.

Á svipaðan einræðislegan hátt gæti Tedros sett reglugerðir byggðar á þessum „heimildarlögum“ sínum sem myndu skara langt fram úr hinum víðtæku Covid-takmörkunum.

NIÐURSTAÐA: Með hinum leynilegu fyrirhuguðu gríðaraukningu valdsviðs framkvæmdastjóra WHO á að veita manni völd sem gera hann að valdamesta manni í heimi. Alvarleg glæpa- og hryðjuverkafortíð þessa manns sem afhjúpuð er í þessum skjölum, ásamt þessari fyrirhuguðu ofgnótt valds, mun óhjákvæmilega leiða til þrældóms þjóðanna! Alþjóðlegt ákall til vakningar fólks af allra landa!

Kæru áhorfendur, Alþjóðasamfélagið, nánast allt fólk á jörðinni, stendur nú á tímamótum! Þrælkun þjóðanna er komið svo lævíslega fyrir að breytingarnar á alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðinni sem lýst er munu öðlast sjálfkrafa gildi nema þeim sé klárlega hafnað! Sá sem þegir - samþykkir því sjálfkrafa! Getum við leyft þessum spillta manni að hafa slíkar valdheimildir? Því skalt þú grípa til tvenns konar aðgerða gegn yfirvofandi heilbrigðiseinræði sem myndi leiða til þrældóms fólks:

Láttu þingmenn í þínu kjördæmi vita. Skrifaðu bréf eða taktu upp símann. Láttu rödd þína hljóma og hvettu þá sem bera ábyrgð til að grípa til aðgerða! Á upprunalegu vefsíðunni okkar www.kla.TV höfum við útbúið skjal til niðurhals (fyrir neðan útsendinguna) til nánari upplýsinga. Þar eru helstu ástæður að finna hvers vegna hafna ætti þessum samningum.

Hjálpaðu til við að dreifa átakanlegum bakgrunni „Tedros-skjalanna“ á allan hátt!

Við sýnum hér Kla.TV hlekkinn! Láttu eins marga vini þína vita með tölvupósti eða WhatsApp. Láttu vita af „Tedros-skjölunum“ á Facebook og TikTok. Í þessu skyni bjóðum við þér stutt myndskeið til niðurhals á upprunalegu vefsíðunni okkar www.kla.TV beint fyrir neðan útsendinguna, sem þegar hefur verið útbúið til dreifingar á samfélagsmiðlum - sérstaklega á TikTok.

Skildu eftir skilaboð