Hefur háskólagráða í leikskólakennslu drepið starfið?

frettinGeir Ágústsson, Innlent1 Comment

Geir Ágústsson skrifar:

Í mörg ár hefur blasað við að yfirgengilegar kröfur um menntun í starf leikskólakennara bitni á nýliðun og vilja fólks til að leggja í þá löngu vegferð sem ráðning í starf leikskólakennara er orðin.

Á sama tíma eru biðlistar á leikskóla að lengjast, ekki bara vegna getuleysis í byggingu á þeim heldur oft vegna manneklu.

Það mætti því segja að háskólagráða í leikskólakennslu sé menntun sem drap starfið.

Ekki veit ég af hverju menn hófu þessa vegferð. Kannski er það þessi þráhyggja um að háskólanám sé eina námið sem eitthvað er varið í. Kannski er þetta eina leiðin til að hækka laun sín innan hins opinbera - raða á sig gráðum og námskeiðum því ekki er hægt að biðja um umbun fyrir vel unnin störf í umhverfi stirðra launataflna í kjarasamningum. Kannski er sökin hjá stjórnmálamönnum sem telja prófgráður sem mælikvarða á velgengni í eigin starfi.

En hver sem ástæðan er þá blasir við að þetta er vonlaust kerfi.

Ég hefði haldið að bestu leikskólakennararnir séu fólk sem hefur gaman af því að fræða börn og veita þeim upplifanir og búa þau undir framhaldið. Og ekki feimið við pissuslys eða svolítið hor.

En það er bara mín upplifun.

Sveitastjórnir hljóta að hugsa sinn gang. Einhverjar þeirra í hið minnsta. Þau sá kostnaðinn þenjast út en þjónustuna rýrna. Eitt úrræði gæti verið að hafa 1-2 háskólamenntaða leikskólakennara á hverjum leikskóla sem sjá um að búa til allskyns áætlanir fyrir börnin. Leiðbeinendur sjá svo um að framkvæma. Þannig má sameina háskólaprófin góðu og manna stöður af fólki sem nennir að vinna með börnum án þess að þræla sér í gegnum langt bóknám í skiptum fyrir léleg laun. Kannski launakostnaðurinn geti þá í staðinn farið í að umbuna duglegu og drífandi fólki frekar en því skreytt mörgum gráðum. Eða mismuna á grundvelli hæfni eins og einhver gæti orðið það.

Frekar en að krefjast áfram menntunar sem drepur starfið.

One Comment on “Hefur háskólagráða í leikskólakennslu drepið starfið?”

  1. Ég man ekki eftir neinu landi (sem við viljum bera okkur saman við) þar sem leikskólar eru vinnustaður þar sem fólk sem fær ekkert annað endar. Allsstaðar annarsstaðar þarf fólk að vera með menntun til að mega vinna með börnum í svona miklu návígi og kröfurnar eru miklar.

Skildu eftir skilaboð