Fréttir

Hryllilegt hryðjuverk í tónlistarhöll í Moskvu – yfir 40 drepnir og 100 særðir

Gústaf SkúlasonErlent, Gústaf Skúlason, HryðjuverkLeave a Comment

Hryðjuverkamenn gerðu árás á tónleikahöll í Moskvu nú í kvöld. Hófu þeir skothríð inni í tónleikasalnum og má sjá á myndskeiðum bæði úr myndavélum og á samfélagsmiðlum hvernig þeir brytjuðu niður tónleikagesti. Að minnsta kosti 40 manns hafa verið myrtir og yfir 100 eru særðir. Samtímis er byggingin í björtu báli.. Úkraína heldur því fram að árásin hafi verið skipuð af Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að stigmagna stríðið.

Samkvæmt fyrstu fréttum fóru að minnsta kosti fimm menn inn á jarðhæð tónleikahússins og hófu skothríð með hríðskotabyssum á gesti, að því er rússneskir fjölmiðlar greina frá. Ennfremur berast fregnir af því að mennirnir hafi kastað sprengju inn í bygginguna. Mörg myndbönd sýna að þak byggingarinnar logar. Hér að neðan má sjá nokkur myndskeið sem sýna hryðjuverkaárásina í Crocus tónlistarhöllinni í Moskvu.
Úkraína: Pútín fyrirskipaði hryðjuverkaárásina

Mychajlo Podoljak, ráðgjafi Volodymyr Zelenskyi, forseta Úkraínu, skrifaði á Telegram samkvæmt AFP fréttastofunni:

„Höfum það á hreinu: Úkraína hefur nákvæmlega ekkert að gera með það sem hefur gerst.“

Leyniþjónusta úkraínska varnarmálaráðuneytisins heldur því fram að árásin í Moskvu sé svokölluð fölsk fánaárás:

„Hryðjuverkaárásin í Moskvu var skipulögð og vísvitandi ögrun sem rússneskir sérsveitarmenn framkvæmdu að skipun Pútíns með það að markmiði að efla og auka stríðið enn frekar.“ 

Hér að neðan má sjá nokkur myndskeið af árásinni:

Uppfært:

Samkvæmt nýjustu upplýsingum, er það íslamska ríkið sem er að baki árásinni, og hafa samtökin upplýst um það opinberlega á samskiptamiðlum.

Skildu eftir skilaboð

Um Fréttina

Fréttin er óháður fréttamiðill sem fjallar um málefni líðandi stundar bæði innanlands og utan. Við fordæmum þöggun og skoðanakúgun, tjáningafrelsið er hornsteinn lýðræðislegs samfélags.

Ertu með áhugaverða frétt eða grein?