Hin voldugu og stolnu börnin

Gústaf SkúlasonHallur Hallsson, Innlendar, Pistlar, Siðferði1 Comment

Hallur Hallsson blaðamaður

Hallur Hallsson skrifar:

Hinir ríku og voldugu ættfeður í fremstu víglínu yfirhylminga og misbeitingar valds í fósturvísahneykslinu eru Kári Stefánsson, Davíð Oddsson, Björgólfur Guðmundsson og Dagur B. Eggertsson. Þá tengjast þrjár stórættir hneykslinu; Thoroddsenar með Katrínu í forsætisráðuneytinu, Fengerar í Nathan & Olsen og Hagkaupserfinginn Sigurður Gísli Pálmason í Ikea.

Árið 1996 stofnaði Kári Stefánsson líftæknifirmað DeCode genetics; Íslenska erfðagreiningu með ríkisábyrgð ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Íslandi var skipað á 1. bekk mannfræðirannsókna í veröldinni. Árið 2004 stofnuðu læknarnir Guðmundur Arason og Þórður Óskarsson tæknifrjóvgunarfirmað Art Medica. Árið 2015 fóru þeir út úr Art Medica sem varð Livio AB tengt Karolinska Institute. Snorri Einarsson varð yfirlæknir. Árin 2008-2010 voru hjónin Gunnar Árnason og Hlédís Sveinsdóttir í meðferð. Úr eggheimtum  komu 50 egg og 29 fósturvísar í eigu Gunnars og Hlédísar. Hjónin notuðu 10 fósturvísa án þess að lánast barn en Art Medica tók ófrjálsri hendi nítján frysta fósturvísa; stal að sögn hjónanna sem hafa lagt fram tugi kæra. Af hverju lánaðist Gunnari og Hlédísi ekki barn en eiga nú líf-börn “út um borgir og bí…”.

LÖGVARINN RÉTTUR BARNANNA

Það var þegar á árinu 2008 sem fósturvísum hjónanna var stolið af Art Medica og afhentir hinum ríku og voldugu. Ásetningur Art Medica var einbeittur. Fyrsti fósturvísir í Hlédísi var settur upp 6.6.2008. Sömu vikur tveir stolnir fósturvísar. Fyrstu líf-börnin voru fædd þremur mánuðum áður en Gunnar og Hlédís giftu sig í júní 2009. Árið 2010 fæddist þriðja barnið, sex börn 2011 og tvö börn 2014-15; samtals 11 börn. Þannig eru níu líf-börn Gunnars & Hlédísar á unglingsaldri sem vita ekki hverjir foreldrar þeirra eru. Börnin hafa lögvarinn rétt að vita uppruna sinn á grundvelli barnalaga nr. 76/2003 og Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, hvað þá að þeim hafi verið komið fyrir í móðurkviði með ólögmætum hætti. Á unglingsárum verða þau að vita hvert af öðru. Slíkt þarf ekki að útskýra en hinir siðblindu sjá ekki.

BJÖRGÓLFUR THOR FYRSTUR

Hjónin kröfðust dna-rannsóknar á fyrsta barninu sem fæddist Björgólfs Thor og Kristínar Ólafsdóttir, þá Ara Fengers og Helgu Lilju Gunnarsdóttur. Þriðja barn fæddist 2010, barn Grétars Halldórs Gunnarssonar prests og Valgerðar B. Eggertsdóttur systur Dags borgarstjóra. Orðið á götunni er að séra Grétar sé eins og snýtt úr nös Kára. Næsta barn fæddist í febrúar 2011 Hólmfríðar Thoroddsen, náfrænka Katrínar Jakobsdóttur. Í september 2011 stúlka Melkorku Huldudóttur og Ragnars Hanssonar listamanna. Melkorka ásamt dætrum hefur verið í Berlín um árabil en samt skráð ábúandi án búsetu á Skólavörðurstíg þar sem Ármann Jakobsson [1914-1999] bankastjóri afi frú Kötu bjó. Melkorka er nú skráð ábúandi á Laugarnesvegi hjá Önnu Tryggvadóttur skrifstofustjóra í barnamálaráðuneytinu afkomanda Tryggva Þórhallssonar [1889-1935] bankastjóra og forsætisráðherra. Amma er Anna Sigríður Pálsdóttur fyrrum dómkirkjuprestur. Síðla árs 2011 fæddist barn Þorsteins Davíðssonar dómara Oddssonar og Heiðrúnar Geirs Waage prests í Reykholti. Björgólfur Thor fékk barn no. 2 árið 2011 og Þorsteinn dómari barn nr. 2 vorið 2014. Sigurður Gísli afabarn í ágúst 2015. Gunnar og Hlédís krefjast DNA rannsókna á alls tíu börnum. Í vinnslu er kæra vegna ellefta barnsins.

AF SENDIFREYJA, BRAGGA & LÖGMÖNNUM LIVIO

Uppljóstri vék sér að Gunnari Árnasyni á Kárastíg í Reykjavík 17. desember 2021. Ekki hægt að skálda. Þau réðu bandarískt lögfræðifirma sérhæft í þessum bransa. Þá byrjaði boltinn að rúlla og varnir að bresta. Uppljóstrari lak sjúkraskrám Lansans sem afhjúpaði innbrot læknahersveita. Uppljóstrari staðfesti líf-barn Gunnars og Hlédísar. Flótti brast á forstjóra og læknalið Landspítalans. Katrín Jakobsdóttir leitar skjóls á Bessastöðum líkt og gerspillt Helga Þórðardóttir hliðvörður í Persónuvernd. Ari Fenger lét af embætti sem formaður Viðskiptaráðs í febrúar 2024 og nokkrum dögum fyrir jól 2023 var Svanhildur Hólm hans Loga Bergmann tilkynnt sendifreyja í Washington. Hólm sendifreyja í Washington! 500 milljón króna bragginn hans Dags B. sefaði marga innvígða og innmúraða. Biskup og prestar hylma yfir líkt og í akkorði hjá Satan. LMG Mandat lögmenn eru hliðverðir Vg og LivioAB nú í eigu vogunarsjóða á Wall Street. Íbúðir eru hið nýja peningaþvætti. Lansinn og landlæknir vernda læknana með kjafti og klóm, Gunnar og Hlédís talin ógn við valdstjórnina. Borgarapparatið gengur vasklega fram í yfirhylmingu líkt og ríkisvaldið. Ríkislögreglustjóri, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beita lögregluofbeldi, sérstakur saksóknari gerspilltur, sviðstjóri ákærusviðs LRH kastar kærum í tætara. Fjölmiðlar 4ða valds ríkisins þaga og þagga.

One Comment on “Hin voldugu og stolnu börnin”

  1. Held að greinin væri mun skýrari ef höfundur setti tappann í flöskuna töluvert áður en hann sest niður til skrifta.

Skildu eftir skilaboð