Marc Pilcher, hár-og förðunarmeistari í Bretlandi sem vann til Emmy verðlauna fyrir þættina Bridgerton, er látinn 53 ára að aldri.
Pilcher lést á sunnudag eftir baráttu við Covid, aðeins þremur vikum eftir að hann vann Emmy verðlaun fyrir starf sitt í þáttaröðinni vinsælu Bridgerton. Þetta staðfesti umboðsmaður hans við tímaritið The Hollywood Reporter. Hann var tvíbólusettur við Covid og ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma.