WHO hefur verið breytt í gróðafyrirtæki segir fyrrum starfsmaður stofnunarinnar

frettinErlent

Sagan öll: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) breyttist 2016, hún er ekki lengur stofnunin sem hún var, heldur gróðafyrirtæki undir raunverulegri stjórn auðkýfinga.

Astrid Stuckelberger er með 30 ára reynslu sem fræðimaður. Á árunum 2009-2013 starfaði hún fyrir WHO, með heimsfaraldur sem sérgrein. Hún hefur gefið út 180 rit og 12 bækur. Hún var nýlega í viðali hjá norskum fjölmiðli:

,,Ég er ekki með neinar upphrópanir, ég vil bara útskýra með vísindalegri nálgun, lygarnar, spillinguna, áróðurinn... og skaðsemi bólusetninganna. Vegna þess að ég er sérfræðingur í lýðheilsu og vísindum."

Þann 18. nóvember sl. sagði hún í viðtalinu að hennar helstu áhyggjur snéru að því að efnin í sprautunum væru ekki bóluefni heldur ,,líftæknileg tilraun.“

Vegna þess að sprauturnar innihalda efni til erfðabreytinga, eins og erfðabreyttar lífverur, það hefði átt að upplýsa fólk um innihald bóluefnisins. „Það hættulega við bóluefnið er að það kallar fram sýkingu. Ég held að það sé ekki broddpróteinið sem er vandamálið heldur að bóluefnið inniheldur grafen. Það er banvænt og nú höfum við tölfræði. Við vitum."

Bill Gates tók yfir Alþjóðaheilbrigðistmálastofnunina (WHO)

Stuckelberger leggur einnig áherslu á að „WHO er ekki sama stofnunin og áður“. Það varð breyting árið 2016, útskýrði hún.

„Þetta var sérstakt: Samtök eins og GAVI – Global Alliance for Vaccine Immunization undir forystu Bill Gates komu til WHO árið 2006 með fjármagn. Síðan þá hefur WHO þróast í nýja tegund alþjóðlegrar stofnunnar. GAVI öðlaðist sífellt meiri áhrif og algjöra friðhelgi, meiri en diplómatar í Sameinuðu þjóðanna hafa. Starfsmenn GAVI geta gert nákvæmlega það sem þeir vilja, lögreglan getur ekkert gert.“

WHO fór í endurskoðun árið 2014 og eftir hana varð WHO meira eins og fyrirtæki með ríki heimsins sem dótturfyrirtæki.

„Þegar ég vann að alþjóðasamskiptum í WHO árið 2013 sá ég að GAVI kom alltaf meira og meira inn í starfsemina. GAVI kynnti alþjóðlega aðgerðaáætlun fyrir bólusetningu 2012-2020. Sem sagt, það voru átta ár þar sem GAVI hafði allt í hendi sér. Bill Gates sá um bólusetninguna, hann tók við.“

WHO fer með gríðarlegt vald yfir ríkjum heims, sagði hún. „Áður voru öll ríkin frjáls. En núna, þegar ég tek tala við fólk um allan heim, sé ég að hvert land er hluti af „WHO fyrirtækinu.“ WHO er ekki lengur lýðræðisleg aðildarsamtök eins og Sameinuðu þjóðirnar. Hinar ýmsu ríkisstjórnir mynda grundvöll „fyrirtækisins“. Það er í rökréttu samhengi við það sem er að gerast í dag, þar sem „fyrirtækin“ vilja peninga, viðskipti og stjórna fólki. Þetta er eins og þrælahald. Skattarnir sem við borgum, renna til ríkisstjórna sem lúta „fyrirtækinu“. Undir fjölþjóðasamtökum, eins og GAVI.

Samningur milli GAVI, Alþjóðabankans og WHO

„GAVI, Alþjóðabankinn og WHO gerðu samning sem heitir IFFM: International Facility Finance for Immunization. Ríkin okkar, fólkið okkar, greiðir til WHO, Alþjóðabankans og GAVI til að framkvæma bólusetningaáætlun sína. Sem þýðir að bólusetja alla íbúa. Þegar maður sér áætlunina frá GAVI þá sér maður að frá 2012 til 2020 hafa þeir haft þetta að markmiði. En svo virkaði planið ekki, þeir urðu að búa til heimsfaraldur.“

Hún sagði að heimsfaraldurinn væri örugglega skipulagður. ,,Þú getur séð þetta af fjölda skjala. Allir geta greint þau, þau eru í opinber, beint fyrir framan augun á okkur.“

Hún benti á rannsókn prófessors John Ioannidis við Stanford háskóla sem sýndi að dánartíðni árið 2020 var ekki hærri miðað við önnur ár. „Þetta er lygi og enginn heimsfaraldur. WHO viðurkennir að dánartíðni sé ekki hærri, en þeir hafa ekki lýst yfir að „faraldrinum“ sé lokið,“ bætti hún við.

Stuckelberger sagðist ekki líta á sig sem uppljóstrara, heldur sérfræðing í lýðheilsu, læknisfræði og vísindum. En aðstoðarmenn Gates hafa lýst yfir stríði á hendur henni. „Háskólarnir í Genf og Lausanne hafa stöðvað öll námskeiðin mín. Þeir hafa stefnt mér fyrir dóm, þeir ráðast á mig. Þeir vilja afturkalla læknaleyfið mitt, þeir eru að reyna að segja að ég sé ekki hæf, að ég sé að ljúga. Þetta á við um alla vísindamenn sem segja þetta sama, við erum núna nokkrir læknar sem vara við dauða eftir bólusetningu. Það er hættulegt fyrir fagfólk að tala um það.“

Þessi fyrrum starfsmaður WHO hló að hlutverki fjölmiðla í að dreifa lygunum. „Fjölmiðlum er greitt af fjölþjóðlegu „fyrirtækjunum“. Ég kalla þá alþjóðlega sjóræningja. Og fjölmiðlar stjórna stjórnvöldum. Fjölmiðlar verða að vera sjálfstæðir, þeir eiga að hjálpa almenningi að fá upplýsingar.“ Hún tekur fram að nokkrar rannsóknir sýni og læknar hafi bent á að það sé til meðferð við Covid-19 en fjölmiðlar segja ekki frá því.

Fólk hefur verið blekkt. Stöðva þarf sprauturnar strax!

Hún telur að hætta verði bólusetningu án tafar. „Á grundvelli innihalds bóluefnanna. Eftir 30 ára rannsóknir veit ég að þegar þú ert með eina, tvær eða þrjár tilviksrannsóknir og þú fylgist með í smásjá, til að finna sannanir, þá þarftu ekki að gera frekari rannsóknir. Það sem þú sérð í smásjá er næg sönnun. Þegar allt að tíu sérfræðingar um allan heim sjá það sama undir smásjánni er það nóg.

„Í bóluefninu sjá sérfræðingar grafen, sníkjudýr, málma... Þess vegna ættum við að hætta bólusetningunni og setja bann á allar sprauturnar. Þeir sem halda áfram ættu að verða sóttir til saka.“

Samkvæmt Stuckelberger er dánartíðni og aukaverkanir sem greint hefur verið frá aðeins 1-10 prósent af raunverulegum tölum. Í lok október sýndi Evrópska EudraVigilance 29.000 látna, en ef allar aukaverkanir hefðu verið tilkynntar má áætla að talan sé nær 290.000.

„Þetta er ekki auðvelt að vita, því krufningar eru ekki framkvæmdar. Það er mikið af lygum og svindli í vísindum og í faginu. PCR prófið er eitt dæmi, læknir getur ekki notað það til greiningar. Læknar fá greitt fyrir að halda því fram að dauðsföll séu vegna Covid, byggt á PCR prófum sem virka ekki. Mjög oft gerist þetta án krufningar. Þeir segja að andlátið sé vegna Covid, jafnvel þegar það er ekki.

Læknar fá greitt fyrir að halda því fram að dauðsföll séu vegna Covid, byggt á PCR prófum sem virka ekki.

„Það er hræðilegt að ekki séu stundar klínískar rannsóknir, maður fær bara upplýsingar frá sjúkrahúsunum. Það er einstakt í sögu heimsfaraldurs að gögnin séu ekki tiltæk. Í Bandaríkjunum er tilkynnt um 17.000 dauðsföll af völdum bólusetninga, þar á meðal börn og ungabörn. Það er ekki í í samræmi við eðlilegt siðferði að halda áfram. Enn sem komið er í Bandaríkjunum er tala látinna vegna sprautnanna þrisvar sinnum hærri en heildartala vegna allra bóluefna samanlagt síðustu 35 ár. Þetta eru opinberar tölur, án klínískra rannsókna eða staðfestingar. Rannsókninni er ekki lokið en bólusetningin heldur áfram. Þetta er hræðilegt, virkilega glæpsamlegt."

Stuckelberger staðfesti að ætlunin væri að dreifa átta skömmtum. „En það var enginn heimsfaraldur. Þetta var faraldur PCR prófa, áróðurs, hræðsluáróðurs... Það er gríðarleg spilling í gangi og hagsmunaárekstrar. Vísindi og fjölmiðlar eru líka spilltir, allt kerfið er spillt. Fagmenn eru keyptir með því að þeir fái eignarhald í fyrirtækjunum sem framleiða bóluefnin. Þetta hefur verið í undirbúningi síðustu 20 ár. Iðnaðurinn stjórnar fjölmiðlum, læknunum... Lygarnar koma frá háskólum sem segja „við þekkjum vísindi.“ Þetta er einstakt. Háskólarnir í Sviss selja Pfizer og Moderna.

„Fólk hefur verið blekkt. Það hefur [því miður] ekki séð að hér hefur verið um áróður að ræða. Og að stefnur og skilgreiningar hafa breyst.“

Heimild.