Sigríður Andersen segir Þórólf ýkja ítrekað niðurstöður rannsókna

frettinInnlendarLeave a Comment

Sigríður Andersen fv. ráðherra segir Þórólf Guðnason ýkja niðurstöður rannsókna frá Sóttvarnastofnun ESB (ECDC) og segir útreikninga hans ekki standast skoðun. Stofnunin hafi gefið út að 0,6% barna „sem smitast“ af Covid-19 þurfi spítalainnlögn og 10% þeirra gjörgæslu og 0,006% „smitaðra“ látist.

Þegar rýnt er í samantekt ECDC er engan veginn hægt að lesa þetta út úr samantekt stofnunarinnar. Það er himinn og haf á milli talna sóttvarnalæknis og talna ECDC. Mér sýnist sóttvarnalæknir ganga út frá því að öll börn sem „smitist“ „greinist“. Það greinast hins vegar ekki allir sem smitast, segir Sigríður.

Sigríður segir jafnframt að ónákvæmni af þessum toga, mögulega vera til þess að hvetja til bólusetningar barna, til að réttlæta áframhaldandi þvingunaraðgerðir í nafni sóttvarna og er til þess fallin að draga úr trúverðugleika boðskaparins.

Í skýrslu ECDC kemur fram að „bólusetningarátak sem ætlað er að draga úr Covid alvarlegum veikindum og dauðsföllum ætti að beinast að auknu bólusetningarhlutfalli fullorðins fólks.“ Og áður en stefna er mótuð um bólusetningu barna vegna Covid-19 leggur ECDC til að hugað sé að framkvæmd slíkrar bólusetningar og heilsufarslegu jafnræði. Hefur það verið gert hér á landi nú þegar bólusetningar barna eru boðaðar, spyr fv. ráðherran.

Pistil Sigríðar má sjá hér að neðan.


Skildu eftir skilaboð