Alan White trommari rokksveitarinnar Yes látinn

frettinErlentLeave a Comment

Alan White, trommuleikari rokksveitarinnar Yes, lést á heimili sínu 72 ára að aldri eftir stutt veikindi. Hljómsveitin tilkynnti um andlátið og sagðist vera  í „áfalli og agndofa“.

White gekk til liðs við sveitina árið 1972, í stað Bill Bruford (sem gekk til liðs við King Crimson).

Í dag var einnig tilkynnt um skyndilegt andlát hljómborðsleikara hljómsveitarinnar Depeche Mode, Andly Fletcher, sem var 60 ára.

Þá var tilkynnt um andlát stórleikarans Ray Liotta sem lést í svefni, 67  ára gamall, í Dóminiska lýðveldinu þar sem hann var við tökur á nýrri kvikmynd. Hann var þekktastur fyr­ir að fara með hlut­verk í kvik­mynd­un­um Good­fellas og Field of Dreams. 

Skildu eftir skilaboð