Hin hliðin: Arnar Sverrisson sálfræðingur mætti í yfirheyrslu vegna kæru transkonu – viðtalið í fullri lengd

frettinHin hliðinLeave a Comment

Arnar Sverrisson sálfræðingur og sérfræðingur í kynröskunarvanda fékk óvænta hringingu frá lögreglunni og var boðaður í yfirheyrslu vegna tveggja fræðigreina um transfólk sem hann skrifaði á Visir fyrir um tveimur árum síðan.

Fréttin fjallaði um málið fyrr í sumar og má lesa hér.

„Prúður og hálfvandræðalegur lögreglumaður tjáði mér að ég væri boðaður í viðtal vegna hatursorðræðu í tveim greinum, sem ég skrifaði í Vísi fyrir tveim árum síðan um kynskipti. Ég skrifaði reyndar um kynskipti í Morgunblaðið einnig, en kærandi minn, Tanja Vigdisardottir, virðist ekki hafa séð hatursorðræðu í henni,“ segir Arnar.

Það fylgdi sögunni, að lögreglan hefði í fyrstu hafnað rannsókn á kæruefninu, en Ríkislögreglustjóri hafi nú fyrirskipað, að rannsókn skyldi fara fram. „Því er ég boðaður í yfirheyrslu. Athyglisvert!,“ segir Arnar.

Hægt er að horfa á viðtalið í fullri lengd hér neðar.


Skildu eftir skilaboð