Óvænt og skyndileg dauðsföll í Þýskalandi rokið upp eftir að „bólusetningar“ hófust

frettinCovid bóluefni, Erlent2 Comments

Skyndileg og óvænt dauðsfall hafa rokið upp í Þýskalandi eftir að byrjað var að gefa fólki Covid sprautuefnin árið 2021. Þetta sýna nýútgefin gögn sjúkratryggingafélaga fyrir 72 milljónir Þjóðverja.

Fjöldi skyndilegra dauðsfalla meira en tvöfaldaðist frá því að sprautuefnið var tekið í notkun í lok árs 2020, fóru úr um 6.000 á ársfjórðungi í 14.000 eins og er. Munurinn, sem er 8.000, þýðir að meira en 80 manns deyja skyndilega á hverjum degi á óútskýranlegan hátt.

Gögnin sem byggjast á sjúkratryggingaskrám 72 milljóna manna í Þýskalandi koma frá Félagi löggiltra sjúkratryggingalækna (KBV), sem þýski þingmaðurinn Martin Sichert og gagnafræðingurinn Tom Lausen fengu afhent. Ástæðan fyrir því að lyfjaeftirlit þýska ríkisins, Paul Ehrlich Institute (PEI), hefur ekki greint og birt þessi gögn áður er óljós.

Sichert og Lausen opinberuðu þessar niðurstöður sínar á blaðamannafundi á mánudag sem sjá má hér.

Þýska ríkisstjórnin setti staðlaðar reglur árið 2020 um notkun vátryggingargagna til að fylgjast með mögulegu tjóni af völdum bóluefnanna, en svo virðist sem þessum reglum hafi ekki verið fylgt.

Gögnin í samræmi við fyrri skýrslur

Gögnin ein og sér geta ekki sýnt fram á hvort bóluefnin eigi þátt í hækkun á óvæntum dauðsföllum. Hins vegar eru gögnin í samræmi við fyrri skýrslur frá þýskum tryggingafélögum sem afhentar voru samkvæmt upplýsingalögum og sýndu að fjöldi reikninga sem tryggingafélögin höfðu greitt vegna bóluefnatengdra aukaverkana og þörfnuðust læknismeðferðar, jókst meira en 30-falt árið 2021 samanborið við árin 2019 og 2020.

Þýsk heilbrigðisyfirvöld hafa enn ekki tjáð sig um nýju gögnin.

Prófessor Stefan Homburg, fyrrverandi forstöðumaður fjármáladeildar háskólans í Hannover skrifaði á Twitter: „Frá því að bólusetningarnar hófust snemma árs 2021 hafa dauðsföll rokið upp „skyndilega og óvænt“. Þetta sýna ný gögn frá KBV sem ná yfir 72 milljónir sjúkratryggðra Þjóðverja.“

2 Comments on “Óvænt og skyndileg dauðsföll í Þýskalandi rokið upp eftir að „bólusetningar“ hófust”

  1. Innlent | mbl | 13.12.2022 | 15:53
    Grímuskylda sett á fyrir norðan
    ===========================
    Er brjálæðið að fara í gang aftur?

    Ætlar þetta forherta liðað eyðileggja jól- og áramótahátíðir landsmanna,
    þeim er vel trúandi til þess.

  2. Tja.. þeir eru nú búnir með nýja simulation sjá utvarpsaga link https://utvarpsaga.is/who-john-hopkins-og-bill-gates-a-nyrri-heimsfaraldursaefingu-med-veiru-sem-drepur-fleiri-og-raedst-a-born/

    Við sem vissum af Event 201 áður en Covid byrjaði vorum undirbúnir fyrir að þetta var hox frá A til Ö. Núna gera þeir annað simulation nákvæmlega 3. árum upp á dag frá fyrri. Athyglisvert er að þeir nefna nýjan Vírus sem byrjar í Brasilíu. Núna er margt að gerast þar og á Bolsonaro undir höggi að sækja útaf kosningasvikum samanber sem gerðist í mid term kosningunum í USA.

    Málið er að þeir gera þetta af því að þeir geta það og hlægja af okkur í leiðinni. Þetta eru allt geðsjúklingar sem framkvæma svona illvirki verst af öllu finnst mér að það eru nógu margir geðsjúklingarnir hér á landi sem fylgja þessu liði.

Skildu eftir skilaboð