Hinn „sjarmerandi“ harðstjóri Jacinda Ardern

frettinKristín Inga Þormar, PistlarLeave a Comment

Eftir Kristínu Þormar:

Ég gat ekki að því gert, en ég hló upphátt þegar ég las fyrirsögn á Visir.is þann 19. janúar, en hún hljóðaði svona:

Katrín segir sjónarsvipti að hinni sjarmerandi Arden

Þar átti forsætisráðherra okkar við einræðisherrann Jacindu Ardern sem búin er að stjórna þjóð sinni, Nýja Sjálandi af mikilli illsku og grimmd síðan "heimsfaraldurinn" byrjaði.

Umsögn Katrínar Jakobsdóttur um afsögn hennar

Forsætisráðherra segir að sjónarsviptir verði af Jacinda Ardern sem óvænt sagði af sér embætti forsætisráðherra Nýja-Sjálands og leiðtoga Verkamannaflokksins í gærkvöldi. Sex ára valdatími hennar hafi einkennst af hverju áfallinu á fætur öðru, allt frá náttúruhamförum, fjöldamorðum, covid faraldrinum og nú til efnahagsástandsins vegna stríðsins í Úkraínu.

Hin hliðin

Þetta er afskaplega falleg lýsing Katrínar á starfsferli hennar, en tökum aðeins stikkprufu af skoðunum annarra á frammistöðu hennar í "heimsfaraldrinum".

9. maí 2021

Hinn harðstjórnandi (tyrannical) forsætisráðherra Nýja Sjálands, Jacinda Ardern hefur loksins ákveðið að tortíma (destroy) eigin borgurum með því að þvinga ALLT framlínustarfsfólk í bólusetningar, að viðlagðri $4.000 sekt ef það hlýði ekki.

NZ Govt now Forces COVID Jabs Or Else Jail Time

29. júní 2021

Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja Sjálands er að íhuga að gera grímunotkun að skyldu, og skönnun QR kóða líka að skyldu á "hááhættusvæðum", eins og börum og veitingastöðum.

Þetta eru einmitt staðirnir sem fólk gjarnan hittist á til að eiga gæðastundir eða lyfta glasi með vinum og kunningjum, og bara vera eðlilegar manneskjur.

Forsætisráðherra Nýja Sjálands er endanlega genginn af göflunum

24. ágúst 2021

Þegar Nýja Sjáland tilkynnti skyndilokun í síðustu viku til að bregðast við einu Covid-19 tilfelli voru viðbrögðin fyrirsjáanleg. Gagnrýnendur Jacindu Ardern og hinnar ströngu "Núll Covid" stefnu ríkisstjórnar hennar fóru á hliðina og fullyrtu að hún hefði "tapað glórunni" og að tillaga hennar væri "ekkert minna en endalaus martröð".

Á hinn bóginn komu klappstýrur hennar með margnotaða frasa um hvernig þau hefðu gert þetta áður, og myndu gera þetta aftur.

New Zealand’s Zero Covid delusion

30. nóvember 2021

Í gær tilkynnti Jacinda Ardern leiðtogi Nýja Sjálands, að ríkisstjórnin ætli núna að veita fólki þann "lúxus" að geta notað salerni á heimilum annarra. (45. mínútna vídeó með Mike Adams, byrjar á mínútu 5)

Clown World on Paradise

Fleiri greinar um þennan grimma harðstjóra

Fljótleg yfirferð yfir íslenska fjölmiðla sýnir að mestu leyti aðeins jákvætt viðhorf til hennar og aðgerða hennar í "baráttunni gegn Covid". Hér er þó ein ársgömul frétt um að vinsældir hennar hafi aldrei verið minni.

Harmagrátur vegna afsagnar forsætisráðherra Nýja Sjálands

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður skrifaði fínan pistil um starfslok hennar:

Þó Ardern skilji eftir sig minningar um versnandi lífskjör, aukna fátækt og ógnarstjórn á tímum Kóvíd, þá harmar vinstri stjórnmálaelítanstjórnmálaleiðtoga, sem gat ekki horfst í augu við, að kjósendur mundu hafna henni í kosningum. 

Nú er hafinn harmagrátur vinstri stjórnmálamanna eins og Katrínar Jakobsdóttur, Keith Starmer og Justin Trudeau yfir þeirri illu meðferð sem þau segja að Ardern hafi þurft að undirgangast. 

Landsmenn Ardern hafa þó aðra sögu að segja og minnast hennar með allt öðrum hætti þegar þeir þurfa að glíma við versnandi lífskjör, aukna verðbólgu og fátækt. 

Hér má meðal annars sjá viðbrögð landa hennar við afsögninni.

Nýjustu fréttir herma að Chris Hipkins sem sestur er tímabundið í stól hennar, hefur tilkynnt að á þessu ári muni fólk sem ekki hefur "þegið" Covid sprauturnar verða elt uppi og sprautað.

Það er eins og viðvaranir þúsunda lækna og vísindamanna um skaðsemi Covid "bóluefnanna" hafi ekki "náð eyrum" stjórnenda Nýja Sjálands (frekar en Íslands).

Nýsjálendingar virðast því vera að fara úr öskunni í eldinn.

Vinkvenna fundur

Það sem líklega fáir vita hér á landi, er að þær eru báðar tengdar inn í glóbalistasamtökin The World Economic Forum (WEF), þar sem Jacinda er í hópi "Young Global Leaders" og Katrín Jakobsdóttir er "Agenda Contributor".

Á þessum fundi í september 2019 virðast þær hafa verið miðað við texta Katrínar, að ræða meðal annars um Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna (<- lesið um þau til að skilja þetta!), sem undir fögrum umbúðum ganga út á að móta heiminn að þeirra eigin hugmynd og svipta okkur hin öllu því sem okkur er kært, jafnvel lífinu líka.

Það er að verða gríðarleg vakning í heiminum núna um þá staðreynd að einhverjir ókjörnir viti firrtir aðilar (WEF og fleiri) eru búnir að vera að plana aðgerðir áratugum saman gegn okkur "óþörfu súrefnisþjófunum", og andspyrnan gegn þeim eykst dag frá degi.

Nú er þessi WEF harðstjóri fallinn af stalli, reyndar virðist tímabundinn arftaki hennar því miður ætla að fylgja í fótspor hennar, en hverjir munu falla næst og þá hverjir taka við, aðrir WEF harðstjórar? Er þetta það sem heimsbyggðin vill?

Skildu eftir skilaboð