Heimspekingar „ranta“ um heiðingja nútímans

frettinHallur Hallsson, Innlent, Pistlar2 Comments

Hallur Hallsson skrifar:

Ég hef verið að segja ykkur frá furðutrú guðlausra sem hefur tekið yfir Ísland; manneskjan komi úr myrkrinu þar sem ekkert sé, hverfi að loknu lífshlaupi, rotni og morkni í myrkrinu. Guðlausir trúa að lífið sé sálarlaus tilviljun en ekki sköpun. Eitt hið fyrsta sem guðlausir gerðu eftir algera yfirtöku sína á Íslandi fyrir svo sem áratug var að hefja hömlulausan innflutning múslima sem hata kristna siðmenningu og fyrirlíta ekkert meir en hina guðlausu; Infidels – Useful Idiots. Hinn kristni trúir á líf í ljósi, Drottinn, skapara himins og jarðar. “Ég er vegurinn, sannleikurinn & lífið,“ sagði Jesús sem boðaði kærleika, fyrirgefningu og Heilagan anda. Ég hef bent á djúpa speki orða Þorgeirs ljósvetningsgoða fyrir þúsund árum; “Ef við slítum í sundur lögin þá slítum við og friðinn.“ Ef marka má guðlausa vilja þeir slíta í sundur lögin og friðinn.

Hið furðulega rant Halls Hallssonar

Skoðanir mínar pirra elítu okkar og vekja hörð viðbrögð. „Kristnir bókstafstrúarmenn eru hinir raunverulegu „heiðingjar“ nútímans,“ skrifar heimspekingur nokkur sem ég nefni nr. 1. Kollegi hans nr. 2 svarar og spyr: „Er uppruni þessarar færslu hið furðulega rant Halls Hallssonar á FB.“ Því er svarað játandi af heimspeking nr. 1, svo sem sjá má af skjáskotum  á síðu minni á FB og bætir við að ekki sé hægt að „óska sér hana í burtu.“ Áður hafði hann ritað að krossar kristni séu skurðgoðadýrkun! Heimspekingarnir fara á flug augljóslega reiðir, pirraðir og ókunnugt um sterkasta afl alheimsins; kærleikann sem Jesús Kristur opnar fyrir okkur mannfólki um Heilagan Anda sem varðar leiðina til Drottins.

Bókstafs rant í bland við þjóðernisrembing

Musteri heiðingja, Babelturninn.

Bóksstafs Rant Halls Hallssonar blandast við þjóðernisrembing, fullyrðir heimspekingur nr. 2. Svo bætir hann við að ekki dugi að óska sér að þetta hverfi úr mannheimi, orðalag mitt. “Það þarf að takast á við það. Veit að við getum treyst hvor öðrum til að fórna okkur í það þegar tækifærin gefast.” Í hverju fórnir heimspekinganna eru fólgnar er mér ráðgáta en kannski vita lesendur. Einhvern veginn held ég að fórnir þeirra verði ekki í anda Jesú Krists en ljóst að verið er að hóta “bókstafs rantaranum [HH]“ enda þarf að taka kallinn niður. Þó má með góðum vilja líta á samræður heimspekinganna sem óábyrgt hjal óvita líkt og þeirra sem nú sitja á sakabekk í Héraðsdómi. Þarf lögregla að rannsaka eða eru heimspekingarnir kannski bara skoðanalöggur? Maður spyr sig.

Enginn munur á þér og múslimum

Eftir alla skæðadrífu vitringanna þá skaut ég inn færslu til heimspekings nr. 1 þar sem ég útlistaði skoðanir mínar um guðleysi í myrkri og kristið líf í ljósi.  Ég fékk reiðipistil frá heimspekingi nr. 1 um að enginn “voðalegur munur“ sé á múslimum og kristnum, bara nokkur útfærsluatriði. „Múslimar trúa á sama guð og þú,“ skrifar spekingurinn. Svona djúp er viskan sem sprettur frá heimspekingum okkar. Ég vil upplýsa vini mína heimspekingana að ég fylgi Jesú Kristi sem boðaði mér að elska óvini mína en fylgi ekki Múhameð sem fór með sverði og drap hundruð á einum og sama degi. Það má kalla “… voðalegan mun.“

Samskiptin má sjá hér neðar:

2 Comments on “Heimspekingar „ranta“ um heiðingja nútímans”

  1. Það þarf mikla trú hjá guðleysingjum að trúa því að hin stórkostlega sköpum heimsins og lífsins í honum sé röð af einskærum tilviljunum. Fólk ætti að spyrja: „Af hverju VIRKAR alheimurinn svona skilvirkilega og af hverju eru vitrænar MANNVERUR í honum?“ Fólk hefur Frjálsan Vilja til að ákvarða sinn áfangastað. Því miður velja margir myrkrið. En það er þeirra réttur.

  2. Það er sorglegt hvað íslenskt geðheilbrigðiskerfi hefur brugðist þér Hallur. Það væri óskandi að þú fengir hjálp við ranghugmyndum þínum. Það er ekki nóg með að það kerfi hafi brugðist þér heldur er skattfé líka notað til að halda uppi stofnun sem spúir lygum og ranghugmyndum út og eitrar hug barna af því að einhver gæji sagði að himnaríki væri barna, en hann hafði nú ekki greiðan aðgang að sendiferðabíl og nammi svo einhvern veginn urðu hann og hans 12 félagar í barnaníðshrignum að tæla börnin til sín. Að fullorðið fólk skuli styðja og dásama svona hegðun er sorglegt en er gott dæmi um hvernig er hægt að heilaþvo heilu kynslóðirnar með ofbeldi og morðum og fá síðan fólk til að trúa því að slíkt hætti ef þau biðji til skáldaðar veru og borgi undir rassgatið á sérvöldum útsendurum. Vonandi muntu sjá ljósið og hætta að styðja þau hryðjuverkasamtök sem hafa fengið að þrífast í samfélagi manna í aldir undir því falska yfirskyni að þau séu hér til að bjarga okkur frá helvíti með því að búa til helvíti á jörðu.

    Með vinsemd og ást
    Einar Viðarsson

Skildu eftir skilaboð