Elon Musk varar Bandaríkin við mögulegu nýju ódæði verra en 9/11

frettinErlent, Gústaf SkúlasonLeave a Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Elon Musk, greinir frá því á X, að Biden-stjórnin hafi flogið hundruðum þúsunda ólöglegra innflytjenda til að minnsta kosti 43 mismunandi staða til að „létta á öngþveitinu“ við landamærin, TGP greinir einnig frá.

Stjórnin heldur því fram, að flogið hafi verið með 320.000 ólöglega innflytjendur til að „fækka“ þeim fjölda sem fer yfir landamærin.

Verið er að leggja grunn að einhverju miklu verra en 11. september

Ekki er vitað hvaðan þessir farandverkamenn koma. Center for Immigration Studies (CIS) segir, að stjórnin vilji halda stöðunum leyndum, vegna þess að „slæmir einstaklingar“ gætu skaðað almannaöryggi og upplýsingarnar gætu hugsanlega veitk löggæslu. Í færslu á X-inu þriðjudag afhjúpaði Musk hina raunverulega ástæðu á bak við áætlun Biden-stjórnarinnar: að flytja inn og dreifa nýjum kjósendum sem munu örugglega kjósa demókrata til að tryggja meirihluta.

Musk tekur fram, að eigingirni ríkisstjórnarinnar skapi alvarlega hættu fyrir öryggi þjóðarinnar sem byggist eingöngu á fjölda ólöglegra innflytjenda „Verið er að leggja grunn að einhverju miklu verra en 11. september.“

Musk segir:

„Þessi ríkisstjórn er bæði að flytja inn kjósendur og skapa ógn við öryggi þjóðarinnar vegna ólöglegra innflytjenda sem ekki hafa verið athugaðir. Það er mjög líklegt að verið sé að leggja grunn að einhverju miklu verra en 11. september. Það er bara spurning um tíma.“

Þökk sé þeirri meðvituðu landamærakreppu sem Biden hefur skapað, þá hefur glæpum fjölgað sem ólöglegir innflytjendur fremja gegn bandarískum ríkisborgurum. Nýlegt morð á efnilegum háskólanema í Georgíu, Laken Riley, er hrópandi dæmi um slíkt. Þar að auki hafa hryðjuverkamenn þegar komið yfir opnu suðurlandamærin.

New York ræður ekki lengur við innflutningsstrauminn til borgarinnar

Myndskeið frá New York sýna yfirfullar gangstéttir þar sem flóttamenn sofa á nóttunni vegna þess að borgarvöld hafa ekkert húsnæði lengur til að taka á móti fleirum samanber myndskeiðið hér að neðan. Fólk fær mat en ekkert húsaskjól. Borgaryfirvöld hafa einnig gripið til þess óyndisúrræðis að loka skólum og senda nemendur heim til að fá pláss fyrir alla innflytjendur.

Skildu eftir skilaboð