Nokkrir hafa látið lífið og aðrir særst af árásarmanni í norska bænum Kongsberg, að sögn norsku lögreglunnar.
Grunaður maður hefur verið handtekinn, sagði blaðamaður hjá lögreglunni í Noregi við CNN nú í kvöld.
Árásamaðurinn er sagður hafa notað boga og örvar við illvirkið að sögn lögreglunnar í Kongsberg.
Lögreglu var fyrst tilkynnt um hinn grunaða árásarmann klukkan 18:15 að staðartíma. Hún bætti við að sá grunaði hafi ráðist á fólk á nokkrum stöðum áður en hann var handtekinn.
Kongsberg er staðsett 85 kílómetra vestur af höfuðborginni Ósló.
Lögreglan boðar annan blaðamannafund klukkan 20:00 á íslenskum tíma.