Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík, greindi frá því á facebook-síðu sinni í dag að hann hefði sagt sig úr Miðflokknum.
Sveinn segist hafa sagt sig frá öllum trúnaðarstörfum og sæti sínu sem varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík, en hann var þriðji á lista flokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2018.
Sveinn Hjörtur og Sigmundur Davíð hafa lengi verið nánir vinir og kemur því úrsögnin á óvart, en eftir síðustu Alþingiskosningar var Sveinn Hjörtur m.a einkabílstjóri Sigmundar og keyrði kann á Bessastaði þar sem Inga Sæland fékk eftirminnilega að fljóta með. Andað hefur hinsvegar köldu á milli Sigmundar og Ingu eftir klausturmálið fræga sem endaði með því að Inga rak þá Ólaf Ísleifs og Karl Gauta Hjaltason úr flokknum og þeir gengu til liðs við Miðflokkin, hvorugur þeirra komst inn á þing eftir síðustu kosningar.
„Þessum kafla lífs míns er hér með lokið. Er ekki á leið í aðra flokka, ef einhver ætti það að vera yrði það HLH-flokkurinn,“ skrifar Sveinn.
Þá segir hann að margar ástæður séu fyrir úrsögninni en að hann hafi ákveðið að hafa þær fyrir sig.
One Comment on “Sveinn Hjörtur segir sig úr Miðflokknum”
Þetta er þó málefnalegra en uppkoma Birgis, enda bara ár eftir af kjörtímabilinu.