Fjölmenn mótmæli standa nú yfir þessa stundina í Róm á Ítalíu þar sem bóluefnavegabréfum er mótmælt. Frá og með 15. október verður Ítölum skylt að framvísa passanum hjá vinnuveitanda, hvort sem það eru ríkis-eða einkafyrirtæki. Þeir sem ekki geta sýnt fram á fulla bólusetningu, neikvætt PCR – próf eða fyrri Covid sýkingu munu missa störf sín. Upptöku af mótmælunum má sjá hér.
Lyfjastofnun segir ekkert samband milli bólusetninga og fósturláta
Lyfjastofnun sendi frá sér í vikunni niðurstöður rannsóknar sem óháð nefnd framkvæmdi á tengslum Covid bólusetninga og röskunar á tíðarhring kvenna. Rannsókninni var hrint af stað af Lyfjastofnun og Landlæknisembættinu eftir að Rebekka Ósk Sváfnisdóttir sem var með blæðingar samfleytt í 53 daga eftir bólusetningu með Pfizer, stofnaði hóp á facebook þar sem nú eru um 2300 konur. Allar eiga konurnar það sameiginlegt að … Read More
Opið bréf til Landskjörstjórnar – Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson samfélagsrýnir og fv. ráðgjafi skrifaði opið bréf til Landskjörstjórnar vegna vistaskipta Birgis Þórarinssonar. OPIÐ BRÉF TIL LANDSKJÖRSTJÓRNAR Á forsíðu Morgunblaðsins í dag, 9. október 2021, er sú frétt að þingmaður sem nýlega var kjörinn á þing fyrir Miðflokkinn, hafi sagt sig úr þeim flokki og gengið til lið við „þingflokk“ Sjálfstæðisflokksins. Ég spyr hvort Landkjörstjórn hafi staðfest þessa … Read More