Hallur Hallsson vill að Þórólfur segi af sér – það er komið nóg

frettinInnlendar1 Comment

Hallur Hallsson sagnfræðingur og fyrrverandi fréttamaður er harðorður í garð Þórólfs Guðnasonar í nýjum pistli sem hann skrifar á facebook síðu sína. Hallur vill að Þórólfur segi af sér þar sem hann vilji nú sprauta börn á aldrinum 5-11 ára með Covid bóluefnunum en börn eru ekki í áhættuhóp og eru einkenni Covid eins og væg flensa fyrir þennan aldurshóp , auk þess sem ekkert barn á Íslandi hefur látist af völdum flensunnar.

Covid bóluefnin hafa verið mjög umdeild þar sem þau hafa valdið miklum og alvarlegum aukaverkunum og eru tilkynningar um aukaverkanir til Lyfjastofnunnar og CDC mörg þúsund prósent meiri en af venjulegum inflúensubóluefnum. Covid bóluefnin eru þar að auki á tilraunastigi til ársins 2023 og virðist því Þórólfur ekki ætla að leyfa börnunum að njóta vafans.

Pistil Halls má lesa hér:

Sóttvarnalæknir boðar á nýju ári bólusetningar 5-11 ára barna. Ég segi: Það er komið nóg. Heilbrigðiskerfið & fulltrúar Pfizer gera tilraunir á íslenskri þjóð og nú er komið að börnum. Það er komið að því að við öll stöndum upp & segjum: látið börnin í friði. „Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um hag barnanna sjálfra,“ segir Þórólfur. Veit hann? Auðvitað ekki. Hann segist vona að bólusetningar barna beri árangur. Hann lætur börnin okkar ekki njóta vafans. Aftur & aftur hefur Þórólfur veifað röngu tré & sagt þjóðinni hluti sem ekki standast. Fullorðnir hafa tekið þrjár sprautur & það eru þúsundir aukaverkana. Bæði hér á landi & erlendis eru í undirbúningi víðtækar málshöfðanir. Vilt þú að Pfizer geri tilraunir á börnum okkar? Nú er Willum Þór nýr ráðherra með nýjar áherslur & tækifæri til að setja nýjan mann í brúnna & skipta um kúrs sóttvarna.

Út í hinum stóra heimi græða lyfjarisar trilljarða dollara; þúsundir milljarða króna á milljarða króna ofan. Aldrei í sögu heimsins hefur Elíta heimsins rakað saman jafnmiklu fé á jafn stuttum tíma. Vesturlönd eru að lenda í fátæktargildru. Samningur við Pfizer er leyndarmál hér sem í öðrum vestrænum ríkjum. Íslensk stjórnvöld hafa fært vald sem setur sig ofar okkar þjóðlega valdi sem nú þegar beygir sig undir kómizara í Brussel & New York. Hinir ofsaríku kætast. Mannlíkaminn er bísniss fyrir lyfjarisa. Ég segi við ríkisstjórn & Alþingi. Stöðvið þessa leyndarhyggju sem hneppir fólkið í landinu í fjötra. Ennþá hefur enginn þingmaður risið upp gegn þessari geggjun.

Í Ameríku er börnum gefnar pizzur fyrir sprautur. Í Evrópu krefur lögregla fólk á götum úti um sprautupassa. Í Ástralíu er fólk hneppt í fangabúðir. Fólk um allan hinn vestræna heim er svipt lýðréttindum, framvísi það ekki bólupassa. Ekki er öld liðin frá því gyðingar báru gula stjörnu. Í okkar samtíma er fólk nú þegar útilokað hafni það sprautu. Fyrirtæki krefjast bólusetninga & falsmiðlar hamra rétttrúnaðinn.


Arnar Þór Jónsson varaþingmaður fórnaði dómaraembætti til að vara okkur við:

„Öllum má vera orðið ljóst að nú er að eiga sér stað háskaleg öfugþróun í samskiptum ríkis og borgara. Ástandið er víða um heim orðið svo alvarlegt að þessu leyti að engum ábyrgum manni leyfist lengur að líta undan. Viðurkenna ber í hreinskilni að stærsta hættan sem nú steðjar að borgaralegu frelsi eru stjórnarfarslegar ófarir, þar sem frjáslyndi verður fasisma að bráð og lýðræði hopar fyrir alræði.“

Ríkisstjórn & Alþingi líta undan & þegja. Innan fárra missera verður spurt: Hvað gerðir þú fyrir börnin? ...

One Comment on “Hallur Hallsson vill að Þórólfur segi af sér – það er komið nóg”

  1. Takk Hallur 💚💚💚
    takk þið öll sem hafið rödd og notið hana.
    Takkkkk

Skildu eftir skilaboð