Flest Covid-andlát meðal einstaklinga með undirliggjandi áhættuþætti

frettinInnlendarLeave a Comment

Sóttvarnarlæknir sendi í dag frá sér samantekt um andlát af völdum Covid-19 á Íslandi. Í tilkynningunni segir að nokkur umræða hafi verið undanfarið um andlátin og hugsanlega aukningu á þeim:

Útbreiðsla og fjöldi COVID-19 smita er mun meiri nú en fyrri ár og þannig hafa smit náð til viðkvæmra hópa, til dæmis eldra fólks og þeirra sem hafa undirliggjandi sjúkdóma eða eru á ónæmisbælandi lyfjum. Flest andlát hafa orðið meðal einstaklinga með undirliggjandi áhættuþætti, þó það sé ekki algilt. Þáttur COVID-19 sýkinga í andlátunum getur því verið óljós í sumum tilvikum.

Frá upphafi COVID faraldursins á Íslandi hafa 93 dauðsföll verið tilkynnt til sóttvarnalæknis sem tengjast smiti af völdum COVID-19. Á þessu ári hafa 56 dauðsföll verið tilkynnt sem er afleiðing af mikilli útbreiðslu ómícron afbrigðisins. Flest andlát hafa verið meðal 70 ára og eldri eða 47 talsins. Þá hafa þrír undir þrítugu látist og þar af eitt barn á þriðja aldursári. Á árinu 2020 voru 29 dauðsföll af völdum COVID-19 tilkynnt en árið 2021 voru þau átta. Bráðabirgðagögn sýna að dánartíðni vegna COVID-19 það sem af er árinu 2022 er 15 per 100 þúsund íbúa en var um eða undir 5 per 100 þúsund í fyrri bylgjum.

Aðeins þau andlát sem læknar meta að COVID-19 hafi valdið, stuðlað að eða á einhvern hátt átt þátt í andlátinu á að tilkynna til sóttvarnalæknis. Sóttvarnalæknir sendi nýlega dreifibréf um skilgreiningu á andláti vegna COVID-19 til að auðvelda læknum að að aðskilja tilvik þar sem dánarorsök var önnur þótt viðkomandi hafi nýlega haft COVID-19 sjúkdóm en þau andlát á ekki að tilkynna.

Í dánarvottorði  sem send eru til embættis landlæknis eru tilgreindar dánarorsakir. Til að dauðsfall sé skilgreint vegna COVID-19 mega ekki líða meira en 28 dagar frá greiningu á COVID-19 og ekki á að vera tímabil algjörs bata af COVID-19 á milli veikinda og andláts.

Þegar andlát eru skoðuð í samhengi við útbreiðslu veirunnar kemur í ljós að þó dauðsföll séu fleiri á undanförnum vikum en í fyrri bylgjum, þá er dánarhlutfall þeirra sem greinast með COVID-19 smit lægra en í fyrri bylgjum. Í fyrstu þremur bylgjum faraldursins þá létust um 0,5% af þeim sem greindust smitaðir. Eftir að delta afbrigðið varð allsráðandi sumarið 2021 og síðan ómícron afbrigðið frá desember 2021 hefur dánarhlutfallið verið 10-15 sinnum lægra eða um 0,03-0,04%. Vafalaust má þakka útbreiddum bólusetningum að stórum hluta fyrir þessa lækkun.

Þegar skoðaður er heildarfjöldi allra dauðsfalla undanfarinna ára eftir vikum þá kemur í ljós að nokkur fjölgun varð á dauðsföllum í viku 3, 8 og 9 á þessu ári miðað við undanfarin ár einkum meðal 70 ára og eldri. Ekki er hægt að fullyrða að þessi aukning sé að öllu leyti vegna COVID-19.  Fjöldi andláta hjá öldruðum helst í hendur við mikla útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu þ.á.m. meðal aldraðra. Hins vegar er ljóst að bólusetningar draga úr alvarlegum veikindum og þar með dauðsföllum.

Skildu eftir skilaboð