Takmarkað gagn af fjórðu sprautu – hvað með fyrstu, aðra og þriðju?

frettinPistlarLeave a Comment

Jón Magnússon skrifar

Athyglisvert að Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir skuli nú segja að það sé takmarkað gagn af fjórðu Kóvíd sprautunni. Tel upp á að það sé rétt hjá honum.

En stóra spurningin, sem þarf að rannsaka gaumgæfilega er sú hvort það var yfirleitt eitthvað gagn af fyrstu sprautunni, annarri eða þriðju.

Fólk smitaðist þó það væri bólusett og það smitaði. Stjórnmála-, heilbrigðis-, og fréttaelítan flúði þá í að segja að fólk fengi sjúkdóminn vægar. En var það svo?

Af hverju ekki rannsaka þetta mikilvæga mál í þaula, þannig að við fáum að vita hvort aðgerðir stjórnvalda víða um heim með þvingunarráðstöfunum og þrýstingi voru þýðingarlausar.

En þá jafnframt hvaða ábyrgð eiga hin ábyrgðarlausu lyfjafyrirtæki að bera, sem hafa mokað inn ofsagróða frá skattgreiðendum e.t.v. á algjörlega fölskum forsendum.

Svo hafa misvitrir stjórnmálamenn viljað taka mannréttindi af fólki sem vildi ekki láta dæla þessu tilraunaglundri í sig. Þarf ekki að skoða það líka hvaða gögn þeir höfðu í höndum sem gat réttlætt slík brot á mannréttindum og í leiðinni hvort slík brot eru afsakanleg yfirleitt.

Skildu eftir skilaboð