Miðað við nýjustu færslu Mark Zuckerberg stofnanda og forstjóra Facebook, þá virðist hann njóta lífsins á Íslandi.
Zuckerberg birti myndir af sér og eiginkonu sinni ásamt fríðu föruneyti og segir hann í færslunni "Photo dump from the Icelandverse".
Í síðustu viku greindu fjölmiðlar frá því að forstjórinn hefði lent einkaflugvél sinni á Akureyraflugvelli og svo haldið áfram inn í land með þyrlu.
Zuckerberg virðist hafa heillast af auglýsingaherferð á vegum Inspired By Iceland, en þar lék Jörundur Ragnarson, Zack Mossbergsson sem líkist mjög Zuckerberg, þar sem gert var stólpagrín af forstjóranum. Grínið virðist hafa hitt í mark því hann dvelur enn á Íslandi og óvíst hversu lengi hann stoppar.
Færsluna má sjá hér neðar.