Helgi Örn: „Menn vissu vel að bóluefnin myndu ekki virka“

frettinInnlendar1 Comment

„Sú tröllatrú sem menn höfðu á bóluefnum gegn Covid og hvernig þau voru töluð upp án þess að sjáanlegur árangur af notkun þeirra væri merkjanlegur hefur orðið til þess að fólk er jafnvelorðið tortryggið gagnvart hefðbundnum bóluefnum. Þetta var meðal þess sem Helgi Örn Viggósson hugbúnaðarsérfræðings og samfélagsrýnir sagði í þættinum í Leit að sannleikanum á Útvarpi Sögu þar sem Helgi var gestur Arnars Þórs Jónssonar lögmanns og fyrrverandi dómara.

Menn vissu að bóluefnin virkuðu ekki

Helgi benti á að þeir sem væru læsir á vísindagreinar hefðu alveg getað séð að bóluefnin myndu ekki virka eins og haldið var fram að þau ættu að gera. Það alvarlega við að bóluefnin hafi verið notuð á fólk er það að menn hafi vel vitað að þau myndu ekki virka og það sem verra er, er að menn hafi vel vitað af hættunni og alvarlegum aukaverkunum af völdum þeirra, meðal annars tugþúsundir dauðsfalla sem nú hafi þegar orðið.

Heilbrigðisyfirvöld hafa oftar en einu sinni verið missaga um Covid, til dæmis þegar fyrst var greint frá því að sjúkdómurinn legðist frekar á eldra fólk og það þeir ungu ungt væru í lítilli hættu. Sú saga breyttist síðar án þess að nokkrar skýringar hafi verið gefnar.

Skyndileg andlát tíðari án frekari skýringa

Helgi Örn segir málið sáraeinfalt. Hingað til hafi verið vitað að ekki væri hægt að bólusetja gegn kvefpest í efri öndunarvegi: „Af hverju hefði þá mönnum átt að takast það í þessu tilfelli á aðeins örfáum mánuðum,“ segir Helgi.

Helgi sagði einnig að svo virtist vera að ekki megi tala um aukna tíðni óútskýrðra andláta á þann hátt að þau tengist á einhvern hátt bóluefninu, til dæmis hjá íþróttafólki, en tíðni skyndilegra andláta meðal íþróttafólks hefur hækkað mjög að undanförnu og nefndi Helgi dæmi um 6 ára dreng sem féll niður örendur á íþróttavelli aðeins sólarhring eftir að hann hafði verið sprautar með Covid bóluefni.

Hlusta má á þáttinn á vef Útvarps Sögu.

One Comment on “Helgi Örn: „Menn vissu vel að bóluefnin myndu ekki virka“”

Skildu eftir skilaboð