Íran er ekki á dagskrá bara Ísrael

frettinErlent, Jón Magnússon, MannréttindiLeave a Comment

Jón Magnússon skrifar:

Árum saman hefur klerkastjórnin í Íran unnið að því að gerð verði allsherjarárás á Ísrael úr mörgum áttum og eytt hundruðum milljarða í það verkefni.

Árásarhringurinn um Ísrael, sem klerkastjórnin hefur búið til er Hesbollah í Líbanon, Hamas á Gaza, Vígasveitir m.a. íranskar í Sýrlandi og vígasveitir á svokölluðum  Vesturbakka. Árás Hamas á Ísrael 7.okt.s.l. var skipulögð og fjármögnuð af Íran.

Vestrænir fjölmiðlar fjalla ekki um þessi mál og hvað mikið er lagt í sölurnar til að ná fram allsherjarútrýmingu á Gyðingum ekki bara Gyðingum í Ísrael heldur öllum Gyðingum. Klerkastjórnin í Íran og ofangreindir nótar þeirra eru mun róttækari en nasistarnir á miðri síðustu öld, en glæpur þeirra ætti að vera öllum víti til varnaðar. 

Á Vesturlöndum hefur engin mótmælt þessum hrikalega stríðs undirbúningi klerkana í Íran eða hvatt fólk til að sniðganga Íranskar vörur.

Árið 2022 leyfði 22 ára stúlka í Íran Masha Amini sér að ganga um án þess að hylja hár sitt. Hún var handtekin og drepin. Frelsi til að ráða klæðaburði sínum nær ekki til kvenna í Íran þrátt fyrir langa baráttu. Kvennasamtök um allan heim horfa framhjá því þegar þær hitta kvenkyns fulltrúa klerkana á ráðstefnum. 

Í kjölfar drápsins á Masha Amin urðu mikil mótmæli og klerkastjórnin drap fjölda fólks aðallega ungt fólk allt niður í 9 ára börn. Margir halda því fram, að fleiri hafi verið drepnir vegna mótmælanna í Íran en fallið hafa á Gasa. 

Á Vesturlöndum hafa mótmæli verð óveruleg vegna þessarar kúgunar, illmennsku og morða í Íran. Ekki eru gerðar kröfur um að fólk kaupi ekki vörur frá Íran og þessi hryðjuverkastjórn verði sniðgengin. Á sama tíma æða þúsundir vinstri sinnaðs fólks og nytsamra sakleysingja í mótmælum gegn Ísrael og er orðið að fimmtu herdeild Írana í  fyrirhuguðu útrýmingarstríði þeirra gagnvart Ísrael. Þetta fólk tekur undir hugmyndir Hamas, Hesbollah og Íran um að má Ísrael út af landakortinu. Þess er krafist að fólk hætti að kaupa vörur frá Ísrael og sniðgangi fyrirtæki eins og Rapid, sem ekkert hefur til saka unnið, út frá rasískum forsendum.

Þetta er krafa af sama meiði og nasistarnir á síðustu öld beittu gegn Gyðingum. Þeir sem þekkja þá sögu blöskrar það sem nú er að gerast meðal vinstri sósíalista í Evrópu. Þeir hafa tekið sér þjóðernissósíalistanna á síðustu öld til fyrirmyndar. Gegn slíkum útrýmingar rasisma verður að bregðast af hörku. 

Þeir sem hingað til hafa jafnan haft rasistaheiti á hraðbergi gagnvart fólki sem vill vernda þjóðleg gildi og takmarka aðgengi ólöglegra hælisleitenda til landsins er fólkið sem nú gerir sig sekt um að vera hinir raunverulegu rasistar. Til dæmis um það má benda á,að engin af þessu liði setur fram kröfu á hendur Hamas að þeir láti eftirlifandi gísla sem voru á sínum tíma meir en 200 lausa. Enginn.

Er það ekki sérkennilegt að kröfur þessa fólks skuli bara vera á annan veginn og beinast á rasískum forsendum að Gyðingum.

Skildu eftir skilaboð