VAERS: 19 dauðsföll barna og unglinga sem höfðu verið bólusett með Pfizer

frettinErlent4 Comments

Allar neðantaldar 19 tilkynningar eru teknar úr VAERS gagnagrunninum í Banda-ríkjunum yfir aukaverkanir vegna Covid bólusetninga. Allar tilkynningarnar voru birtar núna í desember 2021 og eiga það sameiginlegt að öll börnin dóu eftir að þau voru sprautuð með mRNA tilraunalyfinu frá Pfizer.

Meðfylgjandi hverju tilviki er lýsing úr skýrslu. Það skal athugast að orðalag í skýrslum er ekki hefðubundið heldur meira í „skeytastíl“ og oft á „læknamáli“ og geta lýsingarnar hér á eftir verið undarlega orðaðar og stundum ófullkomnar. Reynt var að tryggja að íslenska orðalagið hefði ekki áhrif á merkinguna. Hlekkir á viðkomandi tilkynningu í VAERS fylgir hverju tilviki.

12 ára gömul stúlka frá Suður Karólínu, deyr 2. ágúst 2021, hafði verið bólusett með Pfizer 11. júlí 2021.
Lýsing úr skýrslu mjög takmörkuð. Dánarorsök sögð blæðing í öndunarvegi.

13 ára gömul stúlka frá Mayland, deyr 27. júlí 2021, hafði verið bólusett með Pfizer 11. júlí 2021.
Lýsing úr skýrslu: Stúlkunni leið vel þar til 26. júlí þegar hún fékk ógleði, uppköst, mæði og svima. Um klukkan 04:00 þann 27.7.21, vaknaði hún illa, fór inn á klósett og missti síðan meðvitund. Var flutt á bráðamóttöku með hjartavandamál. Fór í hjartastopp, endurlífgun á bráðamóttöku bar ekki árangur.

17 ára gömul stúlka frá Texas, deyr 23. júlí 2021, hafði verið bólusett með Pfizer 18. júní 2021. 
Lýsing úr skýrslu mjög takmörkuð. Dánarorslök sögð brátt blóðsykursfall.

16 ára gömul stúlka frá Missouri, deyr 13. október 2021, hafði verið bólusett með Pfizer fyrst 13. júlí 2021, ekki er dagsetning á seinni skammti.
Lýsing úr skýrslu: Þetta er skyndileg tilkynning frá neytanda sem hægt er að hafa samband við. Sjúklingur fékk áður fyrsta skammtinn 13. júlí 2021. Sjúklingurinn lést 13. október 2021.

17 ára gömul stúlka frá Washington, deyr 23.október 2021, hafði verið bólusett með Pfizer fyrst 3. september 2021 og svo með seinni skammti 15. september 2021.
Lýsing úr skýrslu: Sjúklingur tilkynnti einkenni (ekki alvarlegt) tilfelli af COVID-19 í ágúst 2021 og náði sér að fullu. Hún tilkynnti að hún hafi fengið Pfizer COVID bóluefni 3/9/21 og annan skammt 15/9/21. Hún kom á bráðamóttöku sjúkrahússins míns 23.10.21 með brjóstverk og mæði í 48 klst. Leið alveg vel áður en óþægindi fyrir brjósti komu. Einkenni voru væg. Engir veikir tengiliðir eða fjölskyldumeðlimir. Hjartarannsóknarstofa var virkjuð og átti að flytja hana þangað þegar hún fékk hjartastopp. Því miður tókst ekki að endurlífga hana. Dánarorsök líklega bráð hjartavöðvabólga.

16 ára gömul stúlka frá Wisconsin, deyr 10. september 2021, hafði verið bólusett með Pfizer 7. september 2021.
Lýsing úr skýslu: Var mjög þreytt og var með auma vöðva 9. september. Fannst 10. september kl. 05:25 látin. Það var mikið blóð ásamt stórum blóðtappa sem virðist hafa komið frá leggöngum.

16 ára gömul stúlka frá Georgíu, deyr 11. nóvember 2021, hafði verið bólusett með Pfizer 9. nóvember 2021:
Lýsing úr skýrslu: Sjúklingur með versnandi súrefnisskort yfir daginn þrátt fyrir margvíslegar breytingar á stillingum öndunarvélar. Hún er ekki kandídat fyrir ECMO vegna lungnablæðingar og blóðflagnafæð með nýlegri lyfjameðferð sem og BMI (sjúklega offitu). Blæðing í öndunarvegi. Foreldrar óskuðu eftir að endurlífgunartilraunum yrði hætt á þeim tímapunkti og var sjúklingurinn úrskurðaður látinn klukkan 20:36 þann 11/11/21.

5 ára gömul stúlka frá Iowa, deyr 22. nóvember 2021, hafði verið bólusett með Pfizer 18. nóvember 2021.
Lýsing úr skýrslu: Bóluefni var gefið um kvöldið. Sjúklingur stóð sig vel. Var útskrifaður heim á laugardaginn. Á mánudagsmorgun fann faðir sjúklings án púls og andaði ekki. Sjúklingur kom á bráðamóttöku þar sem endurlífgun reynd. Síðast vitað um í lagi 21:00 kvöldið áður. Sjúklingur lést 22.11.21 kl. 11:05 CST.

15 ára gömul stúlka erlendur ríkisborgari, deyr 7. ágúst 2021, hafði verið bólusett með Pfizer 11. júlí 2021.
Lýsing úr skýrslu: Sjúkdómssaga innihélt áframhaldandi astma, áframhaldandi Barlows heilkenni, áframhaldandi Marfans heilkenni. 11. júlí 2021 þróttleysi og einstaka verkir í handlegg. Daginn eftir eða 12.júlí 2021 höfuðverkur. Þann 13. júlí 2021, um 16:30 síðasta augnablik vitað með meðvitund. Þann 13. júlí 2021 17:20 fann faðir hennar hana í hjartastoppi. Sjúklingurinn lést á sjúkrahúsi 7. ágúst 2021. Krufning var ekki gerð. Dánarorsök: Hjartastopp, súrefnisskortur í heila.

13 ára gamall drengur erlendur ríkiborgari, deyr 14. ágúst 2021, hafði verið bólusettur með Pfizer fyrst 16. júní 2021 og svo með seinni skammti 11. ágúst 2021.
Lýsing úr skýrslu: Sjúklingurinn fékk fjöllíffærabilun, lungnablæðingu, dreifða blóðstorknun í æð, hita og blóðsýkingu 13. ágúst 2021. Sjúklingurinn lést af óþekktri dánarorsök 14. ágúst 2021.

15 ára gamall drengur erlendur ríkisborgari, deyr 13. ágúst 2021 , hafði verið bólusettur með Pfizer 9. ágúst 2021.
Lýsing úr skýrslu: Því miður lést sjúklingur föstudaginn 13. ágúst 2021 kl. 04:30 án nokkurrar veikindasögu. Fyrir bólusetningu greindist sjúklingurinn ekki með COVID-19.

17 ára gömul stúlka erlendur ríkisborgari, deyr óstaðfest dagsetning, hafði verið bólusett með Pfizer ótilgreindum dögum fyrr.
Lýsing úr skýrslu: Fyrir bólusetningu var sjúklingurinn ekki greindur með COVID-19. Tilkynnandi sagði frá aukaverkun sem átti sér stað í skólanum, nemandi tók fyrsta skammtinn af Pfizer bóluefninu og hún fékk viðbrögð og var lögð inn á sjúkrahús í alvarlegu ástandi. Tilkynnandi upplýsti að sjúklingurinn hefði látist á ótilgreindum degi af ótilgreindri ástæðu.

14 ára gamall drengur,erlendur ríkisborgari, deyr 3. september 2021, hafði verið bólusettur með Pfizer fyrst 6. júlí 2021 og svo með seinni skammti 27. júlí 2021.
Lýsing úr skýrslu: Sjúkrasaga engin. Sjúklingurinn fékk lungnabjúg og lést 3. september 2021. Krufning leiddi í ljós að dánarorsök var lungnabjúgur.

16 ára gamall drengur, erlendur ríkisborgari, deyr 1. september 2021, hafði verið bólusettur með Pfizer 10. ágúst 2021.
Lýsing úr skýrslu: Hjartastopp; hjarta- og lungnastopp; Sjúkrasaga var engin. Sjúklingurinn hafði enga fjölskyldusögu um sjúkdóma. Þann 16. ágúst 2021 kl. 16:40 (6 dögum, 3 klukkustundum og 40 mínútum eftir bólusetningu) fékk sjúklingurinn hjartastopp. Sjúklingurinn var þegar í stað fluttur og lagður inn á sjúkrahúsið sem tilkynnti. Augljós orsök hjartastopps var óþekkt á tölvusneiðmynd (CT), blóðprufu og hjartalínuriti. Ekki náðist meðvitund. Þann 31. ágúst 2021 (21 dögum eftir bólusetningu) lækkaði blóðþrýstingur. Þann 1. september 2021 (22 dögum eftir bólusetningu) lést sjúklingur. Tilkynnt dánarorsök: Hjartastopp; hjarta- og lungnastopp; Blóðþurrð.

Fósturdauði (venjulega ekki tilkynnt sem dauði), deyr á ótilgreindum degi, móðir hafði verið bólusett með Pfizer 12. ágúst 2021, fósturlát 7 dögum síðar.
Lýsing úr skýrslu: Þessi tilkynnandi tilkynnti upplýsingar fyrir bæði móður og fóstur/barn. Þetta er skýrsla um fóstur/barn. Móðirin ólétt á 1. þriðjungi meðgöngu, bólusett 12. ágúst 2021 á 6. viku meðgöngu. Þann 19. ágúst 2021 fékk foreldrið fósturlát. Hjarta barnsins hætti að slá.

17 ára gamall drengur erlendur ríkisborgari, deyr 18. september 2021, hafði verið bólusettur með Pfizer.
Lýsing úr skýrslu: Sjúkdómssaga Downs heilkenni. Hann var ekki með neina sjúkrasögu, aðeins Downs heilkenni. Fyrir bólusetningu var sjúklingurinn ekki greindur með COVID-19.
13 dögum eftir bólusetningu byrjaði sjúklingurinn að sýna alvarleg einkenni sjúkdómsins og lést á 7 dögum. Blóþrýstingsfall, lungnasýking, lungnabólga og Covid-19. Sjúklingurinn fór ekki út úr húsi, fékk ekki gesti og heilsan var mjög góð. Húsmeðlimir tóku PCR próf og samkvæmt niðurstöðunum voru þeir ekki smitaðir. Tilkynnandi sagði að sjúklinginn hafa verið mjög heilbrigðan dreng sem neitaði að taka bóluefni, en hann fékk Pfizer bóluefnið þann 23. ágúst 2021. Hann byrjaði að sýna hitaeinkenni 6. september 2021 klukkan 01:00 og hitinn hvarf ekki og vegna þessa sýndi máttleysi í september 2021. Fluttur á bráðamóttöku 11. september sagt að PCR próf hafi gefið jákvæða Covid-19 sýkingu,sjúklingur lést á sjúkrahúsinu.

15 ára gamall drengur, erlendur ríkisborgari, deyr 24. október 2021, hafði verið bólusettur með Pfizer 23. október 2021.
Lýsing úr skýrslu: Bólusettur í skólanum sínum. Sjúklingurinn var ekki með neitt ofnæmi fyrir fyrri bóluefnum eða lyfjum og ekki var vitað til þess að hann væri með langvinnan sjúkdóm.
Sjúklingur tilkynnti heldur ekki um nein vandamál eða fylgikvilla eftir að hafa fengið fyrsta skammtinn. Sjúklingurinn upplifði sársauka á stungustað (ekki alvarlegur). Fékk öndunarerfiðleika, fannst meðvitundarlaus 24. okt. 2021 09:30 og fluttur á sjúkrahús. Úrskurðaður látinn sama dag kl. 10:40. Dánarorsök: Öndunarvandamál.

13 ára drengur, erlendur ríkisborgari, deyr 30. október 2021, hafði verið bólusettur með Pfizer sama dag.
Lýsing úr skýrslu: Sjúkdómssaga innihélt berkjuastma frá óþekktri dagsetningu og óþekkt hvort það er viðvarandi. Sjúklingurinn var ekki með ofnæmi fyrir lyfjum, mat eða öðrum vörum, Fyrir bólusetningu var sjúklingurinn ekki greindur með COVID-19. Klukkan 21:20, sama dag og var bólusettur, fékk sjúklingurinn hjarta- og öndunarstopp og lést. Dánarorsök sögð óþekkt.

12 ára gamall drengur, erlendur ríkisborgari, deyr 15. október 2021, hafði verið bólusettur með Pfizer fyrst 22. september 2021 og með seinni skammti 13. október 2021.
Lýsing úr skýrslu: Þann 14. október 2021 fékk sjúklingurinn hita, höfuðverk, og missti matarlyst. Þann 15. október 2021 fékk sjúklingurinn hjartabólgu. Þessi skýrsla er alvarleg vegna dauða, lífshættuleg. Tengsl lyfs við viðbrögð/tilvik/atburði: Krufningu lokið og niðurstöður voru hjartavöðvakvilli/hjartastopp.

4 Comments on “VAERS: 19 dauðsföll barna og unglinga sem höfðu verið bólusett með Pfizer”

  1. Mesta skíta frétt vantar umþað bill 95% af upplesiningum sem þarf til að ska heiladar myndina

    Er þetta frétta mennska eða skoðunar blog

    Til skammar að kalla þetta faglega frétta veiti

  2. Hefði mátt fylgja linkur að gagnagrunni til sönnunar. Allt tengt svona mæli ég með láta fylgja linkum af rannsóknum o.þ.h svo fólk fari kannski að trúa að mögulega eru þið að segja satt.

  3. Sunneva Ósk Ayari, það er hægt að fara hingað frá hverri skýrslu í fréttinni og lesa sig til og halda áfram þaðan https://medalerts.org

    MedAlerts offers an alternative to the official VAERS search engine, CDC Wonder. Both are built from the government’s raw data, but MedAlerts has a better user interface, more powerful search capabilities, and more extensive reporting, making it the best VAERS search facility.

  4. Þetta er óboðlegt og er fjöldi sjúklinganna með alvarlega sjúkdóma og einn deyr í miðri krufningu. Svo vantar hlutfall þeirra sem lenda í veseni á móti þeim sem bóluefnið bjargar frá dauða eða heilsutjóni

Skildu eftir skilaboð