Indverski Bollywood söngvarinn KK látinn – hjartastopp talin dánarorsök

frettinErlentLeave a Comment

Hinn þjóðþekkti Bollywood-söngvari Krishnakumar Kunnath, þekktur sem KK, lést í Kolkata á Indlandi á þriðjudag eftir hjartastopp, telja læknar.  KK var 53 ára og þekktur fyrir að syngjavinsæl rómantísk ástarlög.

Honum leið einkennilega þegar hann kom á hótelið eftir að hafa haldið tónleika um kvöldið. Hann hneig niður, sögðu embættismenn, og var fluttur á nærliggjandi sjúkrahús þar sem læknar lýstu því yfir að hann væri látinn. Því miður var ekki hægt að bjarga honum, sagði yfirmaður á sjúkrahúsinu."

Læknar sögðust telja að dánarorsökin væri hjartastopp.

Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, sendi samúðarkveðjur á Twitter og sagði að KK yrði alltaf minnst í gegnum söng hans.


Skildu eftir skilaboð