Er Justin Bieber með bóluefnaskaða?

frettinErlent2 Comments

Þýdd grein eftir Steve Kirsch

VAERS gagnagrunnurinn sýnir að Ramsay Hunt heilkennið (RHS) er 160 sinnum líklegra að myndast eftir COVID bólusetningu en eftir öll önnur bóluefni samanlagt. Og ef þú útilokar miltisbrandsbóluefnið frá þeim samanburði, eru líkurnar einfaldlega of miklar til að reikna út (0 tilfelli á 32 árum). Þannig að COVID bóluefnið ætti örugglega að teljast möguleg orsök fyrir þessum sjaldgæfa sjúkdómi.

Hér má sjá að áætlað hlutfall RHS eftir COVID-bólusetningu er 338 tilfelli af hverjum 100.000. Læknisfræðiritin segja að það eigi sér stað náttúrulega í 5 tilfellum af hverjum 100.000. Þess vegna eru 99% líkur á að RHS Justin hafi verið af völdum bóluefnisins og aðeins 1% líkur á að hann hafi orðið „óheppinn“.

Því miður er ólíklegt að læknar Bieber muni nokkurn tíma viðurkenna þetta svo það er ólíklegt að hann fái þá umönnun sem hann þarfnast (meðhöndla bæði RHS og bóluefnisskaða). Hann mun einfaldlega gera ráð fyrir að hann sé bara óheppinn.

Meginstraumsfjölmiðlarnir eru ekki að vinna vinnuna sína ef þeir segja ekki frá þessu (sem þeir munu ekki gera).

Slæmar fréttir fyrir Justin Bieber

Í samanburði við Bell's Palsy andlitslömun fá sjúklingar með Ramsay Hunt heilkennið oft alvarlegri lömun við upphaf og eru ólíklegri til að ná sér að fullu.

Eiginkona Bieber líklegast einnig með bóluefnaskaða

Skemmst frá því að segja er að eiginkona söngvarans Hailey Bieber, fékk blóðtappa í heila í mars síðastliðnum eftir Covid bólusetningu en hún er einungis 26 ára gömul og er mjög sjaldgæft að fá heilablóðfall svo ungur að aldri. Mikið af ungu fólki fær heilablóðfall nú á dögum … það eina sem þau eiga sameiginlegt: þau hafa öll verið bólusett.

Bieber með harðar reglur á tónleikum, einungis bólusettir velkomnir

Það verður því að segjast að kaldhæðni örlaganna hafi tekið yfir ef sú er raunin að þau hjónin hafi bæði hlotið bóluefnaskaða, því Justin Bieber er mikill fylgjandi bóluefnanna og var með harðar reglur á sínum tónleikum og einungis bólusettir einstaklingar fengu aðgang. Nú er svo komið að söngvarinn hefur þurft að afllýsa öllum sínum tónleikum vegna andlitslömunarinnar sem óvíst er um eins og staðan er í dag hvort gangi til baka eða verði varanlegt, tíminn einn mun leiða það í ljós.

2 Comments on “Er Justin Bieber með bóluefnaskaða?”

  1. Stokkhólms heilkennið í sinni skýrustu mynd?
    Spurning um það hvort loftslagsbreytingar séu orsök veldisvaxtar tilviljana og heilsutengdrar óheppni í veröldinni? Ég bara spyr!?!

Skildu eftir skilaboð