Eini umsækjandinn um starf sóttvarnalæknis ráðinn í starfið

frettinInnlendarLeave a Comment

Aðeins einn umsækjandi var um starf sóttvarnalæknis, Guðrún Aspelund, sem ráðin hefur verið í starfið. Þetta kemur fram í tilynningu frá landlækni sem er svohljóðandi:

Guðrún Aspelund hefur verið ráðin sóttvarnalæknir við embætti landlæknis frá og með 1. september 2022. Guðrún starfar nú sem yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embættinu. Hún hefur embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands og sérfræðimenntun í bæði almennum skurðlækningum og barnaskurðlækningum en hún var lektor og barnaskurðlæknir við Columbia-háskóla á árunum 2007 til 2017. Guðrún, sem jafnframt hefur lokið meistaranámi í líftölfræði, hefur góða þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra og hefur að auki komið að birtingu vísindagreina um smitsjúkdóma og sýklalyfjanotkun. Hún hefur öðlast mikla þekkingu og reynslu á verkefnum sóttvarnasviðs í starfi sínu undanfarin ár. Þá hefur hún einnig reynslu og stundar nám á sviði opinberrar stjórnsýslu.

„Ég hef öðlast góða sýn á starf sóttvarnarlæknis undanfarin ár og sé í starfinu tækifæri til að láta gott af mér leiða. Ég geri mér grein fyrir að starfinu fylgir mikil ábyrgð og ég hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan,“ segir Guðrún.

„Ég er mjög ánægð með ráðningu Guðrúnar í starf sóttvarnalæknis. Hún er með góða menntun og reynslu sem mun nýtast en hefur einnig til að bera nauðsynlega eiginleika fyrir krefjandi starf sóttvarnalæknis, m.a. góða samskiptahæfni, vinnusemi, skipulagshæfni, sjálfstæði og yfirvegun,“ segir Alma D. Möller landlæknir.

Starf sóttvarnalæknis var auglýst 13. maí síðastliðinn en Þórólfur Guðnason lætur af störfum í byrjun september 2022. Auglýsingin var birt á Starfatorgi og í fjölmiðlum og var umsóknarfrestur til og með 13. júní. Ekki bárust fleiri umsóknir en frá Guðrúnu. Ráðning var ákveðin í kjölfar mats á umsókn og ítarlegs viðtals en með landlækni í því ferli voru Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Unnur Valdimarsdóttur prófessor í faraldsfræði við Læknadeild Háskóla Íslands og Þórgunnur Hjaltadóttir sviðsstjóri hjá embætti landlæknis.

Nánar upplýsingar veitir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis í [email protected].

Alma D. Möller
landlæknir

Skildu eftir skilaboð