Flugmenn og flugþjónar hjálpa við að afhlaða Icelandair flugvél í Amsterdam vegna manneklu

frettinInnlendar1 Comment

Fréttinni barst ábending um að nú væru flugmenn og áhöfn að hjálpa til við að afhlaða vél Icelandair vegna manneklu. Vélin var um hálftíma of sein til Schiphol flugvallar í Amsterdam.

Samkvæmt flugvirkja sem vinnur á vellinum þolir flugvöllurinn ekki umferðina vegna starfsmannaskorts. Hann segist síðan hafa verið í 90 mínútur að komast í gegnum öryggiseftirlit inn á völlinn.

Schiphol hefur óskað eftir því við flugfélög að þau fækki flugum til Schiphol, vegna þess að ekki hefur gengið að manna í öll störf á vellinum.

Á myndinni hér að neðan sést áhöfnin vera að afhlaða vélina ásamt starfsmönnum á Schiphol flugvelli.

Image

One Comment on “Flugmenn og flugþjónar hjálpa við að afhlaða Icelandair flugvél í Amsterdam vegna manneklu”

  1. Vel gert segi ég nú bara – Ekki allar flugáhafnir sem myndu gera þetta. Minnir mig svoldið á auglýsinguna frá Icelandair þegar flugmaðurinn mokar snjóinn frá hjólabúnaðinum og kemur fólkinu heim fyrir jólin – Íslenska viðhorfið „bara reddum þessu“. 🙂

Skildu eftir skilaboð