Bill Gates með karlabrjóst, bumbu og ,,tannstönglahandleggi“ að ráðleggja um heilsufar

frettinErlentLeave a Comment

Í nýju Joe Rogan Experience hlaðvarpi settist grínistinn niður með Diana Rodgers næringarfræðingi og Rob Wolf lífefnafræðingi til að ræða nútíma rannsóknir sem þrýsta á að allt kjöt verði tekið úr daglegu mataræði. Samtalið færðist síðan yfir á Bill Gates sem er einn helsti talsmaður þessara rannsókna og einn stærsti eigandi ræktunarlands í Bandaríkjunum.

Rogan spurði hvort milljarðamæringurinn væri ekki að græða. „Bill Gates heldur áfram að segja okkur að við verðum að borða minna kjöt, verðum að draga úr kjötneyslu til að vera heilbrigð og að við ættum eftir að venjast þessu kjötlíki.“

Rogan setti síðan út á líkamsvöxt Bill Gates: „Þú lítur hræðileg illa út, þú ert að borða þessa plöntuborgara eða hvað sem í fjandanum þú ert að gera, og þú ert of feitur. Maður eins og Bill Gates með þessi brjóst og þessa bumbu er að segja fólki hvað það á að gera, þetta er galið, þú ert einn af ríkustu mönnum jarðar, hefur aðgang að bestu næringarefnunum og topp einkaþjálfurum, þú gætir verið í stórkostlegu formi. Þú ert að ráðleggja fólki með heilbrigðismál og þú ert sjálfur óheilbrigður.

Rogan lét ekki þar við sitja og sagði að Gates ætti ekkert erindi með að vera gefa fólki ráðleggingar um heilsufar. „Þetta er bókstaflega eins og manneskja sem ekki stundar neinar íþróttir væri að þjálfa afreksíþróttamenn. Hvað í fjandanum ertu að tala um? spurði Rogan. „Hvers vegna ertu að gefa fólki ráðleggingar um heilbrigði þegar þú lítur svona út? Heilsufar þitt er afburða lélegt.“

Rogan sagðist sjálfur ekki vera heilbrigðissérfræðingur en hélt því fram að hann gæti sagt að 66 ára gamli maðurinn væri ekki í besta formi miðað við hvernig hann liti út. „Ég er ekki læknir. En ef maður er með "man boobs" og bumbu og handleggi eins og tannstöngla, þá segi ég „Hey félagi, þú ert ekki heilbrigður.

Skildu eftir skilaboð