Gríðarleg aukning í sjúkraflutningum – mikið um alvarleg veikindi segir framkvæmdastjóri Mýflugs

frettinInnlendar1 Comment

Morgunblaðið sagði frá því í gær, 3. ágúst, að mik­il aukn­ing hafi verið í sjúkra­flugi Mý­flugs í júlí­mánuði, einkum frá sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri. Flogið var með 128 sjúk­linga í 120 sjúkra­flug­ferðum í mánuðinum, og er það met­fjöldi í sögu sjúkra­flugs og að almennt hafi um­svif í sjúkra­flutningum auk­ist mikið.

Fyrstu sjö mánuði síðasta árs hafi flug­ferðirn­ar verið 483 en væru nú orðnar 537 það sem af er ári.

Ekki kom fram í fréttinni, þar sem rætt var við Leif­ Hall­gríms­son, fram­kvæmda­stjóri Mý­flugs, hver ástæðan gæti verið. Fréttin sló því á þráðinn til Leifs og spurði hvort hann hefði einhverja skýringu á þessu.

Leifur sagðist enga skýringu hafa en þeim þætti þetta afar athyglisvert og aukningin væri gríðarleg, það væri 20% aukning í júlí miðað við júlí 2021.

Leifur sagði þetta ekki stafa af fleiri slysum eða vera meira vegna ferðamanna, það væri meira um alls konar alvarleg veikindi eins og heilablóðföll og hjartaáföll og einnig væri aukning á flutningum sjúklinga eftir aðgerðir frá Landspítalanum yfir á sjúkrahús á landsbyggðinni til að losa um sjúkrarúm á Landspítalanum.

Spurður hvort þetta væri eitthvað meira áberandi í ákveðnum aldurshópum sagði Leifur það vera mikið af eldra fólki, um 60 ára og eldri og eitthvað væri um flutninga á börnum.

Hann bætti því við að nýlega hafi verið meira um flutninga á Covid sjúklingum en áður og þeir væru á öllum aldri en taldi það vera fyrst og fremst vera meðal fólks með undirliggjandi sjúkdóma.

Um 49% aukning frá árinu 2020

Í frétt frá janúar 2022 á Eyjar.net kemur framÓmar Olgeirsson, sérfræðingur hjá Sjúkratryggingum Íslands hafi sagt í samtali við Eyjar.net að árið 2021 hafi Mýflug flogið alls 805 sjúkraflug á árinu 2021 sem væri töluverð aukning frá árinu 2020 þegar Mýflug fór 619 ferðir með sjúklinga. Þetta er 23% aukning frá árinu 2020 til 2021.

Á árinu 2020 voru sjúkraflug því að meðaltali 51 á mánuði en á þessu ári er meðaltalið um 77 sem er 48,7% aukning.

One Comment on “Gríðarleg aukning í sjúkraflutningum – mikið um alvarleg veikindi segir framkvæmdastjóri Mýflugs”

Skildu eftir skilaboð