Trump hvetur til þess að gögnin sem tengjast FBI húsleitinni verði tafarlaust opinberuð

frettinErlentLeave a Comment

„Það er ekki aðeins þannig að ég muni ekki setja mig upp á móti því að skjölin sem tengjast óamerískri, tilefnislausri og óþarfa árás og innbroti á heimili mitt í Palm Beach, Flórída, Mar-a-Lago, verði opinberuð, heldur ætla ég að ganga skrefinu lengra með því að HVETJA til tafarlausrar birtingar á þessum skjölum, jafnvel þó að þau hafi verið sett saman af róttækum vinstri demókrötum og hugsanlegum framtíðarpólitískum andstæðingum, sem hafa sterka og öfluga hagsmuni af því að ráðast á mig, eins og þeir hafa gert síðustu 6 ár...,“ sagði Donald Trump á fimmtudaginn á samfélagsmiðlinum Truth Social.

„Þessi fordæmalausa pólitíska vopnaða valdbeiting á löggæslu er óviðeigandi og siðlaus. Heimurinn fylgist með því að landið okkar hefur náð nýjum botni, ekki aðeins á landamærum okkar, í glæpamálum, efnahagslífi, orkumálum, þjóðaröryggi og svo mörgu öðru, heldur líka með tilliti til okkar heilögu kosninga!,“ sagði Trump í síðari færslu sinni.

https://www.wsj.com/articles/fbi-recovered-eleven-sets-of-classified-documents-in-trump-search-inventory-shows-11660324501

Skildu eftir skilaboð